Innlent

Bjarni: Spurning hvort hægt sé að gera vopnahlé um ýmis mál

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bjarni og Katrín munu halda fundi sínum áfram í dag. Fundinum í gær lauk ekki að sögn Katrinar.
Bjarni og Katrín munu halda fundi sínum áfram í dag. Fundinum í gær lauk ekki að sögn Katrinar. Vísir/Anton Brink
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir aðspurður hvort langt sé á milli hans og Katrínar Jakobsdóttur í stjórnarmyndunarviðræðum að máta þurfi samstarfið við þau verkefni sem bíða á næsta kjörtímabili.

Katrín og Bjarni funduðu á skrifstofu þingflokks VG í dag auk þess sem að þau funduðu í gær. Ljóst er að flokkarnir eru lengst frá hvor öðrum á hinum pólitíska ás og Bjarni segir að það hafi alltaf legið fyrir að langt væri á milli flokkanna. 

Aðspurður um hvort að telji að flokkarnir nái saman segir Bjarni að hann vilji ekkert segja til um það. „Ég ætla ekki að segja neitt af eða á um það en eitt af því sem við þurfum að ræða um er hvort að það þurfi að gera svo mikla málamiðlanir að báðum aðilum myndi á endanum líða illa með það, jafnvel þótt að það væri hægt að setja það saman og smíða þær að þá væri það kannski hugsanlega ekki nægilega sterkt lím til þess að mynda ríkisstjórn. Þetta eru þau mál sem við erum að ræða,“ segir Bjarni.

Þá segir hann að skoða þurfi hvort að möguleiki sé að leggja ákveðin mál til hliðar sem erfitt getur verið að semja um.

„Svo þarf auðvitað að máta þetta við verkefnin sem bíða okkar á næsta kjörtímabili. Hvort að það sé hægt að gera vopnahlé um ýmis mál sem undir venjulegum kringumstæðum myndu vera ágreiningsefni en þurfa ekki endilega að vera á dagskrá við þær aðstæður sem uppi eru í þjóðfélaginu núna.,“ segir Bjarni í samtali við fréttastofu.

Spurður að hvort að slíkt vopnahlé gæti gengi sagði Bjarni ekki hafa svarið við því. Bjarni og Katrín munu ræða saman á ný síðar í dag.

Þriðja flokkinn þarf til að mynda ríkisstjórn sem nyti meirihluta. Samkvæmt heimildum Vísis er ekki vilji innan Vinstri grænna að fara í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn án Samfylkingarinnar. Bjarni Benediktsson og Sjálfstæðismenn eru hins vegar ekki jafnopnir fyrir því.

Aðspurður hvenær niðurstöður muni fást í viðræðurnar svaraði Bjarni:

„Ég veit það ekki, ég veit það eitt að ég vil að það gerist sem fyrst.“


Tengdar fréttir

Katrín og Bjarni funda

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks komu saman til fundar á öðrum tímanum í dag til þess að fara yfir mögulegt stjórnarsamstarf flokkanna tveggja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×