Sport

Bisping fyrsti breski heimsmeistarinn í UFC

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hinn 37 ára gamli Michael Bisping varð um nýliðna helgi heimsmeistari í millivigt UFC er hann vann mjög óvæntan sigur á Luke Rockhold.

Bisping er búinn að vera lengi í bransanum og hafði beðið í áraraðir eftir stóra tækifærinu. Hann nýtti það heldur betur.

Rockhold virtist ekki bera neina virðingu fyrir Bisping. Mætti hrokafullur og kærulaus til bardagans og fékk á baukinn fyrir vikið.

Það var strax í fyrstu lotu sem Bisping rotaði Rockhold og varð um leið fyrsti Bretinn til þess að verða heimsmeistari í UFC. Bisping kemur frá Manchester og er harður stuðningsmaður Man. Utd.

Rockhold tók tapinu illa og sýndi Bisping enga virðingu eftir bardagann. Hélt frekar áfram með hrokann.

„Guð minn góður. Bisping er svo mikið fífl. Hann sýndi sitt rétta andlit eftir bardagann með því að öskra á mig hvort ég vissi hvar ég væri. Hann er algjör drullusokkur og ég mun drepa hann í næsta bardaga,“ sagði Rockhold en Bisping kallaði hann homma í kjölfarið og þurfti að stía þá í sundur. Þeir voru klárir í meiri slagsmál á blaðamannafundinum.

Á sama bardakvöldi varði Dominick Cruz titil sinn í bantamvigt er hann hafði betur gegn Urijah Faber. Faber var að reyna við beltið í fjórða sinn og klikkaði enn og aftur.

Bardaga Bisping og Rockhold má sjá hér að ofan.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×