Innlent

Biskupsritari á Selfoss

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Nýr afleysingaprestur í Selfossprestakalli, séra Þorvaldur Karl Helgason.
Nýr afleysingaprestur í Selfossprestakalli, séra Þorvaldur Karl Helgason.
Séra Þorvaldur Karl Helgason, fyrrverandi biskupsritari, hefur verið settur sem afleysingaprestur í Selfossprestakalli í vetur og mun sinna því starfa með séra Axel Á. Njarðvík fram til haustsins 2015 eða þegar tveir nýir prestar munu koma til starfa í prestakallinu.

Auglýst verður eftir sóknarpresti og presti fljótlega á nýju ári og mun þeir taka við embættum 1. september 2015.

Séra Þorvaldur Karl hefur sinnt sérverkefnum á vegum kirkjunnar síðustu ár, jafnframt því að vera sviðsstjóri þjónustusviðs á Biskupsstofu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×