Fótbolti

Birkir tryggði Pescara stigin þrjú

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Birkir og félagar komust upp í 6. sæti ítölsku B-deildarinnar með sigrinum í dag.
Birkir og félagar komust upp í 6. sæti ítölsku B-deildarinnar með sigrinum í dag. vísir/getty
Birkir Bjarnason skoraði eina mark leiksins þegar Pescara bar sigurorð af Virtus Lanciano í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Mark Birkis kom á 75. mínútu en þetta var áttunda deildarmark íslenska landsliðsmannsins í vetur.

Með sigrinum komst Pescara upp í 6. sæti deildarinnar en liðin sem enda í 3.-8. sæti fara í umspil um eitt laust sæti í efstu deild að ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×