Innlent

Birgitta snöggreiddist Ásmundi þegar hann ræddi prófkjör Pírata: „Hættu að ljúga!“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ásmundur Friðriksson og Birgitta Jónsdóttir tókust á í þingsal í dag.
Ásmundur Friðriksson og Birgitta Jónsdóttir tókust á í þingsal í dag. vísir
Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins ræddi prófkjör Sjálfstæðisflokksins í liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Hann sagði þúsundir hafa tekið þátt í prófkjörum flokksins og það væri sérstaða hans á meðal pólitískra afla hér á landi hvernig valið væri á lista.

„Mikill fjöldi kemur þarna að og tekur þátt í að marka listana og taka þátt í starfi flokksins,“ sagði Ásmundur en þá heyrðist í Birgittu Jónsdóttur þingmanni Pírata: „Eru þetta ekki störf þingsins?“

Til snarpra orðaskipta kom á milli Ásmundar og Birgittu í kjölfarið þar sem þingforseti þurfti ítrekað að slá í bjöllu sína og biðja um hljóð í þingsalnum.

„Þetta er öðruvísi en hjá háttvirtum þingmanni Birgittu Jónsdóttur og þar eru auðvitað ekki margir kallaðir til þegar á að velja á lista,“ sagði Ásmundur og heyrðist Birgitta spyrja hvað væri í gangi.

Forseti sló þá í bjöllu sína og Ásmundur hélt áfram:

„Svo situr bara einn í restina og velur lifenda eða dauða á listana svo ég held að þú ættir ekki að vera að hafa hátt hvernig valið er á lista þegar þú ein situr svo eftir og kroppar þá út sem þér líkar ekki við.“

Var Birgitta vægast ósátt við orð Ásmundar og hrópaði á hann „Hættu að ljúga! Hættu að ljúga!“

Forseti sló þá hátt í bjöllu sína og bað ítrekað um hljóð í þingsalnum.

„Vertu ekki að trufla mig þegar þú hendir fólki af listunum þínum út í hafsauga dag eftir dag. Við vinnum ekki þannig í Sjálfstæðisflokknum. við látum fólkið velja og svo er þetta samþykkt á stórum og almennum fundum og þar er enginn einn maður sem hendir öðrum út. Hjá okkur ríkir friður um prófkjörin.“

Hér má heyra upptöku af ræðu Ásmundar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×