Sport

Birgit og Tom van der Vliet Evrópumeistarar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Birgit fagnar ásamt þjálfara sínum
Birgit fagnar ásamt þjálfara sínum Vísir/Aðsend
Birgit Pöppler frá Þýskalandi og Tom van der Vliet frá Hollandi urðu Evrópumeistarar í keilu í dag, en mótið fór fram í Egilshöll.

Tom vann fyrsta leikinn 259–236 og jafnaði Mattias metin 227 – 228 í öðrum leik þar sem síðasta kastið réð úrslitum.

Þá var komið að hreinum úrslitaleik. Þar var mikil spenna alveg fram í lokin en það fór svo á endanum að Tom sigraði 213 200 og viðureignina 2-1 og er því Evrópumeistari landsmeistara 2014.

Andrea sá aldrei til sólar í úrslitunum og sigraði Birgit því nokkuð örugglega. Fyrsta leikinn vann hún 190–139 og annan leikinn 266 – 169.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×