Formúla 1

Bílskúrinn: Spenna á Suzuka

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg og Mercedes fagna eftir japanska kappaksturinn.
Nico Rosberg og Mercedes fagna eftir japanska kappaksturinn. Vísir/Getty
Nico Rosberg tók risastórt skref í átt á sínum fyrsta heimsmeistaratitili í japanska kappakstrinum um liðna helgi. Lið Rosberg, Mercedes tryggði sér um leið þriðja heimsmeistaratitil sinn í röð.

Getur Hamilton komið til baka, í alvörunni? Eru ræsingar of stór þáttur í heimsmeistarakeppni? Verður einhver framþróun á bílum héðan í frá? Varðist Verstappen of harkalega? Hver var ökumaður dagsins? Þetta og fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Baksvipurinn á Lewis Hamilton.Vísir/getty
Getur Hamilton komið til baka? Í alvörunni?

Fjórar keppnir eru eftir, það eru 25 stig fyrir fyrsta sætið í hverri þeirra. Það gefur því auga leið að 100 stig eru í pottinum. Lewis Hamilton getur því fræðilega enn orðið heimsmeistari ökumanna. Líkurnar eru þó hverfandi með hverri keppni sem lýkur. Sérstaklega ef þeim lýkur með þannig að Rosberg eykur forskot sitt.

Allt getur þó gerst í kappakstri og það gerist yfirleitt, eins og hinn goðsagnakenndi lýsandi Murray Walker sagði eitt sinn.

Hamilton þarf að snúa aftur til vinnandi vegar, ætli hann sér að ná í sinn fjórða heimsmeistaratitil sem ökumaður. Nú dugar Hamilton ekki að vinna allar keppnirnar fjórar sem eftir eru, ef Rosberg verður alltaf í öðru sæti.

Hamilton þarf því að treysta á að einhver komist á milli þeirra liðsfélaganna. Helst þyrfti Hamilton á því að halda að Rosberg falli úr leik svona eins og einu sinni eða tvisvar, en tryggja að hann vinni þá keppnina sjálfur.

Ræsingin í Japan. Hamilton er í miðri þvögu fyrir aftan Kimi Raikkonen á Ferrari.Vísir/Getty
Eru ræsingar ákvörðunarvaldur í heimsmeistarakeppninni?

Ræsingarnar hafa valdið heimsmeisturum Mercedes miklum hausverk á árinu. Það er öruggt að Mercedes hefur lagt töluvert af sínum mikla þunga í að komast til botns í vandanum. Aðrir virðast ekki eiga í sömu vandræðum. Ferrari liðið til að mynda græðir yfirleitt einhver sæti í ræsingu. Red Bull eiga það einnig til að verða eldsnöggir í ræsingum.

Hamilton virðist hafa þjáðst meira af slökum ræsingum. Af þeim sjö ráspólum sem Hamilton hefur náð í á tíambilinu hefur hann einungis tvisvar haldið forystunni í gegnum fyrstu beygju. Hann hefur alls tapað 23 sætum í ræsingum á árinu.

Japanski kappaksturinn var þar veigamestur en þar tapaði Hamilton sex sætinum í ræsingu en ræsti annar.

Rosberg hefur þó fengið sinn skerf af slökum ræsingum líka. Hann tapaði 14 sætum í ræsingu fram að malasíska kappakstrinum sem var keppnin á undan þeirri í Japan. Í Malasíu tapaði Rosberg 15 sætum í fyrstu beygju eftir samstuð við Sebastian Vettel. Það var því ekki ræsingunni sjálfri að kenna.

Ræsingar hafa augljóslega haft áhrif á keppnir fremstu manna í ár og þar með úrslit keppnanna og þar með heimsmeistarakeppni ökumanna.

Red Bull, Force India og Ferrari eru líklega enn að þróa bíla sína. Þó með annað augað á næsta ári.Vísir/Getty
Eru allir hættir að þróa bíla sína í ár?

Leiða má líkum að því að nýkrýndir heimsmeistarar Mercedes séu farnir að hugsa algjörlega um hönnun bíls næsta árs. Ferrari og Red Bull eru í harðri rimmu um annað sæti í keppni bílasmiða. Red Bull leiðir þá baráttu með 50 stigum. Þar sem milljónir dollara er munurinn á að lenda í öðru eða þriðja sæti eru bæði lið sennilega enn með hugann að einvherju leyti við bíl ársins 2016.

Eins eru Force India og Williams í gallharðri baráttu um fjórða sæti í keppni bílasmiða. Þar er munurinn 10 stig Force India í vil. Líklega vill Force India halda í fjórða sætið.

Eins og áður segir hefur Mercedes líklega hætt þróun bíls ársins 2016. Þeir gætu því enn verið með forskot í þróun bílanna á næsta ári.

Hamilton læsir dekki við að reyna að bremsa seinna en Verstappen og komast fram úr. Það gekk ekki.Vísir/getty
Varðist Verstappen of harkalega?

Fastur liður eins og venjulega í Bílskúrnum. Voru varnartilburðir of vel í lagðir? Max Verstappen á Red Bull og Lewis Hamilton glímdu harkalega um tíma á brautinni. Komið var undir lok keppninnar og Hamilton gerði eina alvöru tilraun til að komast fram úr Verstappen.

Hamilton reyndi að leika á ungstirnið í síðustu beygju hringsins en Verstappen brást við. hamilton þurfti þá að leita út fyrir brautina og sleppa því að taka beygjuna til að eyja von um hreinlega að klára kappaksturinn.

Hins vegar er ekki við Verstappen að sakast, ekki að þessu sinni að minnsta kosti. Hann brást einu sinni við, skynsamlega og fylgdi þeirri stefnu sem hann tók. Hamilton klúðraði einfaldlega möguleikanum á framúrakstri.

Nico Rosberg getur ekki verið annað en kátur með útnefningu blaðamanns. Líklega er hann líka ánægður með að auka forskot sitt um 10 stig.Vísir/Getty
Ökumaður dagsins

Augljósa svarið er Nico Rosberg á Mercedes. Enda fljótastur á öllum æfingum, ræsti af stað á ráspól og kom fyrstur í mark. Hann fullkomnaði ekki alveg þrennuna. Hann náði ekki hraðasta hring í keppninni.

Hins vegar tókst honum að spara bíl sinn talsvert sem gæti skipt miklu á lokametrum heimsmeistaramótsins. Hann stjórnaði keppninni algjörlega og fór vel með bílinn á meðan. Hans helsti keppinautur og liðsfélagi, Hamilton þurfti aftur á móti að taka mun meira á sínum bíl og því ekki ólíklegt að hann hafi slitið bílnum meira út.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×