Innlent

Bíll brann í Reykjanesbæ

Gunnar Valþórsson skrifar
Bíll brann á Ásbrú í Reyknanesbæ og er málið í rannsókn. (Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.)
Bíll brann á Ásbrú í Reyknanesbæ og er málið í rannsókn. (Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.) lárus e bjarnason
Mjög hefur hlánað á höfuðborgarsvæðinu í nótt og því nokkuð um vatnselgi þegar snjórinn sem legið hefur yfir tekur að bráðna. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu hefur nóttin þó sloppið til og ekkert verið um útköll vegna vatnstjóna. Þó búast menn þar á bæ allt eins við því fá slíkar tilkynningar þegar tekur að birta af degi.

Í Reykjanesbæ er sömu sögu að segja. Mikið hefur hlánað en ekkert hefur þó verið um útköll vegna vatnstjóns. Um klukkan hálffjögur í nótt brann bíll til kaldra kola fyrir utan íbúðarhús á Ásbrú í Reykjanesbæ. Að sögn lögreglu er ekkert vitað um eldsupptök að svo stöddu en málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×