Innlent

Skófu bílana undir rauðri sól

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Anton Stefánsson náði þessari glæsilegu mynd af sólinni í gærmorgun.
Anton Stefánsson náði þessari glæsilegu mynd af sólinni í gærmorgun. Mynd/Anton Stefánsson
Annan daginn í röð vöknuðu íbúar á höfuðborgarsvæðinu upp við rauða sól á himnum. Ástæða fallega litsins er gosmengunin frá Holuhrauni en mengunarskýið gerir það einnig að verkum að tunglið hefur verið í rauðleitari kantinum undanfarin kvöld.

Frost var á höfuðborgarsvæðinu í nótt sem varð til þess að fjölmargir þurftu að skafa bíla sína áður en haldið var til vinnu. Hið sama var uppi á teningnum í gærmorgun. Er vissara fyrir alla að verða sér úti um sköfu enda ekkert annað í kortunum næstu daga en næturfrost.

Fjölmargir lesendur Vísis hafa fest glæsileika sólar og tungsl undanfarna tvo daga á filmu og sent Vísi. Bestu myndirnar má sjá hér að neaðan.

Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir náði þessari mynd á Laugarvatni.Mynd/Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir
Hjalti Ómarsson náði þessari mynd á iPhone 5 síma á ferð sinni á Álftanesi.Mynd/Hjalti Ómarsson
Hörður Bjarnason náði þessari mögnuðu mynd af sólinni.Mynd/Hörður Bjarnason
Ragnhildur Þórólfsdóttir náði þessari fínu mynd af sólinni yfir Esjunni.Mynd/Ragnhildur Þórólfsdóttir
Rakel Lúðvíksdóttir fylgdist með sólinni rísa í Grafarholti.Mynd/Rakel Lúðvíksdóttir
Mikael Orra lét sig ekki muna um að halda á sólinni við Miðnesheiði rétt á meðan myndin var tekin.Mynd/Magnús Kristinsson
Sveinn Ásgeirsson fylgdist með sólinni fyrir hönd Vestmannaeyinga.Mynd/Sveinn Ásgeirsson
Valgerður Vigfúsdóttir náði þesari glæsilegu mynd af þeirri gulu (rauðu).Mynd/Valgerður Vigfúsdóttir

Tengdar fréttir

Rauð sólarupprás

Vegna mengunar frá gosinu í Holuhrauni virtist sólin vera rauð þegar hún kom yfir sjóndeildarhringinn í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×