Innlent

BHM undirbýr málsókn gegn ríkinu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Valli
„Það verða þung skref sem félagsmenn BHM stíga inn á vinnustaði sína hjá ríkinu eftir að hafa verið þvingaðir úr lögmætu verkfalli með lagasetningu Alþingis í gær.“

Bandalag háskólamanna segir Alþingi hafa afnumið samningsrétt þeirra og það sé skýrt brot á stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu. Bandalagið hefur hafið undirbúning málssóknar gegn ríkinu „til þess að fá þessu mannréttindabroti hnekkt.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM.

Verkfallsaðgerðir höfðu staðið yfir í tæpar tíu vikur í gær og segir í tilkynningunni að það sé umhugsunarvert að ríkisvaldið hafi ekkert gert til þess að afsýra verkföllum.

„Í stað þess að ganga til samninga við BHM dró ríkið bandalagið fyrir dómstóla í því augnamiði að hnekkja verkfallsboðunum. Þeim kröfum hafnaði Félagsdómur með eftirminnilegum hætti. Á 24 samningafundum deiluaðila hjá Ríkissáttasemjara þokaðist samninganefnd ríkisins aldrei frá forskrift Samtaka atvinnulífsins.“

Í tilkynningunni segir að efni 3. greinar laganna sé lítið annað en ósvífin aðför að ríkisstarfsmönnum.

„Samkvæmt henni kannast ríkisvaldið hvorki við að hafa samið við lækna um tæplega 30% launahækkun til rúmlega tveggja ára né heldur við nýlegan samning sinn við framhaldsskólakennara. Ríkið hefur afhent Samtökum atvinnulífsins samningsumboð ríkisins við starfsfólk sitt.“

BHM segir það vera áhyggjuefni að ríkisvaldið skuli hvorki skynja né skilja hlutverk sitt sem vinnuveitandi þúsunda háskólamenntaðra sérfræðinga sem sinni nauðsynlegri opinberri þjónustu í þjóðfélaginu. Landsmenn gætu ekki verið án þeirrar þjónustu.

„Frá upphafi kjaraviðræðna á liðnu ári hefur samninganefnd BHM lagt sig fram um að skilgreina sameiginlega hagsmuni félagsmanna sinna og ríkisins af því að mæta sanngjörnum kröfum um að háskólamenntun sé metin til launa. Að auki hefur BHM viljað tryggja virkni stofnanasamninga hjá ríkinu en í þeim eru kjör sérfræðinga hjá ríkinu ákvörðuð. Svo virðist sem ríkisvaldið sé með öllu áhugalaust um virkni þeirra samninga. Af því leiðir að launakerfi ríkisstarfsmanna er ekki á vetur setjandi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×