Tónlist

Beyoncé á fyrstu tónleikunum: „Ég tileinka þetta lag mínum fallega eiginmanni“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Beyoncé ásamt dönsurum á tónleikunum í gær.
Beyoncé ásamt dönsurum á tónleikunum í gær. vísir/getty
Beyoncé hóf í gær tónleikaferð sína um heiminn í tilefni útgáfu nýjustu plötu sinnar Lemonade. Tónleikarnir fóru fram í Miami á Flórída en seinasta lagið á þeim var “Halo” sem söngkonan tileinkaði eiginmanni sínum, Jay Z.

„Ég tileinka þetta lag mínum fallega eiginmanni. Ég elska þig svo mikið,“ sagði Beyoncé áður en hún flutti lagið.

Þetta hefur vakið nokkra athygli þar sem söngkonan syngur opinskátt um erfðileika í hjónabandinu á nýju plötunni.

Af textum plötunnar að dæma hefur Jay Z haldið fram hjá eiginkonu sinni og hún því efast um samband þeirra og ást en allt virðist nú fallið í ljúfa löð.

Hér að neðan má sjá myndband frá tónleikunum.


Tengdar fréttir

Drottningin blandar límonaði

Beyoncé kom aðdáendum sínum á óvart á laugardaginn en hún gaf óvænt út plötuna Lemonade sama dag og hún frumsýndi samnefnda mynd á HBO. Platan hefur vakið töluverða athygli, aðallega vegna opinskárra texta um hjónabandsvandræði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×