Fótbolti

Benzema skaut Evrópumeisturunum áfram | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Karim Benzema tryggði Real Madrid sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Sporting í Lissabon í kvöld.

Real Madrid er í 2. sæti F-riðils og mætir Borussia Dortmund í hreinum úrslitaleik um efsta sætið í lokaumferð riðlakeppninnar eftir tvær vikur.

Líkt og í fyrri leiknum lentu Evrópumeistararnir í vandræðum gegn Sporting í kvöld.

Raphaël Varane kom Real Madrid yfir á 29. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Eftir rúmlega klukkutíma leik fékk Joao Pereira, leikmaður Sporting, að líta rauða spjaldið fyrir afar litlar sakir.

Einum færri jöfnuðu Sporting-menn þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Adrien Silva skoraði þá af öryggi úr vítaspyrnu. En Benzema kom Real Madrid til bjargar þegar hann skoraði með skalla eftir sendingu frá Sergio Ramos. Lokatölur 1-2, Real Madrid í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×