Innlent

Benedikt tekur við góðu búi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Benedikt á vafalítið eftir að blaða í fleiri skýrslum en þessari á kjörtímabilinu.
Benedikt á vafalítið eftir að blaða í fleiri skýrslum en þessari á kjörtímabilinu. vísir/vilhelm
Fréttablaðið náði tali af þeim sem nú taka við ráðherraembætti og spurði þau sömu fimm spurninganna. Benedikt Jóhannesson er nýr fjármála- og efnahagsráðherra.

Hvert verður þitt fyrsta verk sem ráðherra?

Það verður að heilsa upp á fólkið sem er hér í ráðuneytinu, kynnast starfsemi þess og fara svo í stofnanirnar.

Hvað gerði forveri þinn í starfi sem þú ert óánægður með?

Ég hef nú sagt það að ég hefði gjarnan viljað að hann hefði skilað þessari skýrslu fyrr, í október. En annars held ég að hann skili býsna góðu búi.

Hvað gerði forveri þinn vel í starfi?

Hann skilar góðu búi. Það hjálpar nýjum ráðherra.

Hvaða verkefni verður fyrirferðarmest í þínu ráðuneyti á kjörtímabilinu?

Það eru auðvitað mjög mörg föst verkefni hér. En ég ætla að nefna breytingar á peningamálastefnunni sem er mjög stórt verkefni. Og svo náttúrlega ný ríkisfjármálaáætlun og áætlun um útgjöld kjörtímabilsins. Það eru mikilvæg verkefni sem við byrjum á strax á morgun.

Sóttist þú eftir þessu embætti?

Ég hefði nú getað hugsað mér ýmis ráðuneyti. En þetta endaði svona að ég lenti hér. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×