Enski boltinn

Benayoun réðst á Barton á Twitter

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Yossi Benayoun, leikmaður Maccabi Haifa í ísraelsku deildinni, sendi Joey Barton, leikmanni QPR kaldar kveðjur á samskiptamiðlinum Twitter í morgun.

Barton sem liggur sjaldan á skoðunun sínum á Twitter var að tjá sig um málefni Palestínu og Ísrael. Svaraði Benayoun með því að segja að sumir hlutir breyttust ekki, Barton væri og yrði heimskur alla sína ævi og að skoðanir hans væru vandræðalegar.

Barton svaraði stuttu síðar en óskaði Benayoun að lokum velfarnaðar og að fjölskylda hans myndi sleppa örugglega frá öllu ofbeldinu sem fer fram á þessum slóðum þessa dagana.

Benayoun og Barton léku saman hjá QPR á síðasta tímabili en Benayoun tók tilboði Maccabi Haifa í heimalandinu eftir tímabilið en Barton mun leika með QPR í ensku úrvalsdeildinni í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×