Fótbolti

Svona var blaðamannafundur strákanna í Annecy

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birkir Már Sævarsson, Jón Daði Böðvarsson og Lars Lagerbäck sátu fyrir svörum á blaðamannafundi karlalandsliðsins á Novotel-hótelinu í Annecy í morgun. Margir fulltrúar erlendu pressunnar voru á staðnum en um hundrað manns voru mættir á æfingu liðsins í gær.

Strákarnir okkar æfa í Annecy í dag og taka svo morgunæfingu í fyrramálið, laugardag, áður en haldið verður á vit átta liða úrslitanna í París. Okkar menn mæta, eins og allir ættu að vita, Frökkum í átta liða úrslitum á Stade de France klukkan 21 að staðartíma á sunnudag, klukkan 19 að íslenskum tíma.

Blaðamannafundurinn var í beinni útsendingu hér á Vísi og í beinni textalýsingu hér að neðan. Upptakan af fundinum er í spilaranum að ofan.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×