Fótbolti

Beckenbauer: Khedira passar inn í hvaða lið sem er

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Khedira varð heimsmeistari með Þýskalandi í sumar.
Khedira varð heimsmeistari með Þýskalandi í sumar. Vísir/Getty
Franz Beckenbauer, heiðursforseti Bayern München, segir að þýski landsliðsmaðurinn Sami Khedira væri fullkominn viðbót við lið Bayern.

Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Khedira sem á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Evrópumeistara Real Madrid. Lið Arsenal hefur oftast verið nefnt sem líklegur áfangastaður miðjumannsins, en nú virðast þýsku meistararnir vera komnir inn í myndina.

Það hefur kvarnast úr hópi miðjumanna Bayern að undanförnu; Toni Kroos er farinn til Real Madrid, Javi Martinez verður frá í lengri tíma vegna slitins krossbands og Bastian Schweinsteiger mun einnig missa af byrjun tímabilsins vegna meiðsla.

Beckenbauer segir Khedira frábæran kost fyrir Bayern.

„Khedira passar inn í hvaða lið sem er,“ sagði Beckenbauer í samtali við Sport Bild.

„Hann er ótrúlega sterkur í stöðu varnarsinnaðs miðjumanns. Annað hvort við hlið Schweinsteiger eða Philipp Lahm. Það væri fullkomið.“

Bayern mætir Wolfsburg á föstudaginn í sínum fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.


Tengdar fréttir

Arsenal lagði fram tilboð í Khedira

Spænski miðillinn AS fullyrðir í dag að Arsenal hafi lagt fram tilboð í Sami Khedira, leikmann Real Madrid og þýska landsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×