Fótbolti

Baulað á Lampard þegar New York City fékk skell

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lampard lék sinn fyrsta leik á tímabilinu í gær.
Lampard lék sinn fyrsta leik á tímabilinu í gær. vísir/getty
Frank Lampard á ekki sjö dagana sæla hjá New York City sem leikur í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.

New York fékk skell í gær þegar liðið tapaði 0-7 á heimavelli fyrir New York Red Bulls. Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.

Patrick Viera, knattspyrnustjóri New York, setti Lampard inn á fyrir Andrea Pirlo þegar 15 mínútur voru til leiksloka og Chelsea-goðsögnin fékk óblíðar móttökur frá stuðningsmönnum liðsins sem létu hann heyra það.

Lampard fær sex milljónir dollara fyrir tímabilið, meira en allt Red Bulls liðið til samans, en hann hefur verið mikið meiddur og leikurinn í gær var hans fyrsti á tímabilinu.

Sjá einnig: Það besta sem Lampard gæti gert fyrir félagið væri að fara

New York er í 2. sæti Austurdeildarinnar með 17 stig eftir 13 leiki en liðið hefur aðeins unnið tvo af sjö heimaleikjum sínum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×