Innlent

Barnafjölskyldur hrekjast undan ferðamannaflóðinu í miðbænum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Kristín Einarsdóttir er leikskólastjóri Miðborgar sem er meðal annars með starfsemi í Lindarborg í Lindargötu.
Kristín Einarsdóttir er leikskólastjóri Miðborgar sem er meðal annars með starfsemi í Lindarborg í Lindargötu. Vísir/hanna
„Það hefur reynst okkur erfitt að halda uppi starfi á átta deildum og því hefur sú ákvörðun verið tekin að loka þremur deildum,“ segir í bréfi sem foreldrum barna í leikskólanum Miðborg barst nýlega.

Ástæða breytinganna er sögð sú að síðastliðin tvö ár hafi gengið illa að vista í öll laus pláss í Miðborg og því hafi börnum í leikskólanum fækkað. Starfsemi leikskólans er á þremur stöðum; í Barónsborg, í Lindarborg og í Njálsborg.

„Leikskólabörnum hefur einfaldlega fækkað í miðbænum,“ segir Kristín Einarsdóttir, leikskólastjóri Miðborgar.

„Þó að ég sé enginn sérfræðingur myndi ég halda að einn áhrifavaldurinn hér sé fasteignaverðið,“ segir Kristín. Ekki sé hlaupið að því fyrir barnafólk frekar en flesta aðra að kaupa húsnæði í miðbænum „Þegar fæðist kannski barn númer tvö og fólk ákveður að stækka við sig er það of dýrt.“

Þá nefnir Kristín að fólki sé sagt upp leigu því húseigandinn vilji hærra leiguverð. „Foreldrar hafa flutt í önnur hverfi vegna þess að húsaleigan hefur hækkað eða þeim er sagt upp,“ segir hún. Gjarnan vegna þess að eigandi húsnæðisins stefni í að selja ferðamönnum gistingu. „Ég hef heyrt dæmi um það. Það er bara allt í leigu í Airbnb.“

Innritun er ekki enn að fullu lokið en Kristín segir að um 120 börn verði í þremur húsum Miðborgar í vetur. Eðlilega fækki starfsfólki með breytingunum en samt þurfi ekki að grípa til uppsagna. Alls starfi nú 32 í skólanum.

„Það voru starfsmenn að hætta til þess að fara í nám og við þurfum að ráða í eitt stöðugildi. Þjónustan hefur ekkert breyst hjá okkur. Þetta er sami góði leikskólinn,“ útskýrir Kristín Einarsdóttir.

Árgangarnir 2009 og 2010, sem voru fremur stórir, eru nú báðir komnir í gegn um leikskólastigið. Sigrún Björnsdóttir hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar kveðst þó ekki kannast við sambærilega fækkun leikskólabarna og lokanir deilda í framhaldi af því annars staðar en í Miðborg.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×