Sport

Barist í Liverpool á morgun

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Bjarki Þór Pálsson er tilbúinn í sinn fyrsta atvinnubardaga.
Bjarki Þór Pálsson er tilbúinn í sinn fyrsta atvinnubardaga. Sóllilja Baltasardóttir
Mjölnisstrákarnir Bjarki Þór Pálsson, Bjarki Ómarsson og Egill Øydvin Hjördísarson keppa í MMA annað kvöld. Bardagarnir fara fram í Liverpool og er mikið undir hjá strákunum.

Bardagarnir fara fram í Shinobi War bardagasamtökunum og náðu strákarnir tilsettri þyngd í hádeginu í dag. MMA Fréttir skoðaði andstæðinga strákanna og verður afar áhugavert að sjá hvernig þeim mun vegna annað kvöld.

Bjarki Þór berst sinn fyrsta atvinnubardaga eftir að hafa farið í gegnum 12 áhugamannabardaga með 11 sigra og aðeins eitt tap. Bjarki Þór sigraði Evrópumeistaratitilinn síðasta vetur eftir að hafa tekið fimm bardaga á fjórum dögum.

Hann tekur nú skrefið í atvinnumennskuna sem er nokkuð sem hann hefur stefnt að frá því hann byrjaði fyrst í íþróttinni í september 2010. Í atvinnubardögum eru loturnar lengri (5 mín. í stað 3. mín lotur), hanskarnir þynnri og nota má olnboga.

Bjarki Ómarsson (6-4) berst um fjaðurvigtartitil Shinobi en síðast sigraði hann andstæðing sinn á aðeins 19 sekúndum. Sá bardagi fór fram í sömu bardagasamtökum og voru aðstandendur keppninnar svo hrifnir af frammistöðu hans að hann fékk umsvifalaust titilbardaga.

Egill Øydvin Hjördísarson (4-1) er æstur í að fá að berjast á morgun enda var hann illa svikinn síðast. Egill átti að berjast í lok apríl en aðeins nokkrum klukkustundum fyrir bardagann hætti andstæðingur hans við.

Andstæðingur hans kvaðst ekki vera með far í höllina en svaraði svo ekki skilaboðum þegar aðstandendur keppninnar buðust til að borga leigubíl fyrir hann. Hann fór því í fýluferð síðast og getur ekki beðið eftir því að fá að berjast á morgun.

Róleg stemning er í hópnum fyrir bardagana og ætla þeir að kíkja í bíó kvöldið fyrir bardagana eins og venjan er. Fjölmargir bardagar eru á dagskrá á morgun en áhugasamir geta horft á bardagana í beinni hér.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×