Fótbolti

Barcelona ekki í vandræðum með Espanyol

Stefán Árni Pálsson skrifar
Messi var frábær í kvöld.
Messi var frábær í kvöld. vísir/getty
Barcelona vann góðan sigur á Espanyol í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn fór 4-1 og voru þeir Luis Suarez og Lionel Messi sjóðheitir í leiknum. 

Suarez skoraði tvö mörk og Lionel Messi setti eitt ásamt Jordi Alba. Eina mark Espanyol gerði David Lopez.

Barcelona er í öðru sæti deildarinnar með 34 stig, þremur stigum á eftir Real Madrid sem er á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×