Sport

Bandarískur ruðningur á Íslandi | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Aðsend
Vinsældir NFL-deildarinnar bandarísku fara sívaxandi hér á landi en einnig er hægt að æfa og spila bandarískan ruðning hér á landi.

Einherjar hafa haldið úti slíku starfi hér á höfuðborgarsvæðinu en á dögunum fór fram fyrsti leikurinn á Íslandsmótinu í amerískum fótbolta, eftir því sem fram kemur á Facebook-síðu Einherja.

Hér fyrir neðan má sjá samantekt úr leiknum sem lauk með öruggum sigri rauða liðsins gegn því bláa, 24-5.

Næsti leikur fer fram síðustu helgina í janúar og verða þeir rauðu að vinna til að eiga möguleika á titlinum.

Highlights 21. Nóv from Bergthor Palsson on Vimeo.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×