Bílar

Bandarískur nýliði ekur í Spa

Finnur Thorlacius skrifar
Alexander Rossi verður í fyrsta skipti undir stýri í Formúlu 1 um helgina.
Alexander Rossi verður í fyrsta skipti undir stýri í Formúlu 1 um helgina.
Í fyrsta skipti frá árinu 2007 verður bandarískur ökumaður undir stýri á Formúlu 1 bíl þegar kappaksturinn í Spa í Belgíu verður ræstur um helgina. Það er hinn 22 ára Alexander Rossi sem mun aka fyrir Marussia liðið.

Hann leysir Max Chilton af hólmi en ekki er ljóst hvort það verði til frambúðar. Alexander Rossi er vonarglæta Bandaríkjamanna í þessum þekktasta kappakstri heims en hlutur Bandaríkjamanna hefur verið æði rýr í Formúlu 1 á síðustu árum, eða í raun áratugum.

Þessi umskipti á ökumönnum hjá Marussia liðinu er mjög óvænt og engar fréttir eru af því af hverju Max Chilton ekur ekki fyrir liðið um helgina. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×