Innlent

Banaslys á Suðurlandsvegi á Sólheimasandi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
lögregla fékk tilkynningu um alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi á Sólheimasandi skammt vestan við Pétursey klukkan 22.55 í gærkvöld.
lögregla fékk tilkynningu um alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi á Sólheimasandi skammt vestan við Pétursey klukkan 22.55 í gærkvöld. Vísir/Loftmyndir ehf.
Erlendur karlmaður lést er hann varð fyrir bifreið sem ekið var vestur Suðurlandsveg í gær. Ökumaður bifreiðarinnar var erlendur ferðamaður en lögregla fékk tilkynningu um alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi á Sólheimasandi skammt vestan við Pétursey klukkan 22.55 í gærkvöldi.

Sá látni var í tíu manna hóp á tveimur bifreiðum. Bifreiðarnar voru stöðvaðar í vegkantinum og fólkið fór út úr þeim.

Ekki liggur fyrir með hvaða hætti slysið bar að en lögreglan á Suðurlandi rannsakar slysið og aðdraganda þess. Fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa kom á staðinn. Þjóðveginum var lokað í um þrjár klukkustundir á meðan vettvangsrannsókn fór fram.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×