Sport

Bætti 28 ára gamalt heimsmet í kvöld en fær ekki að keppa á ÓL

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Keni Harrison.
Keni Harrison. Vísir/Getty
Keni Harrison frá Bandaríkjunum setti nýtt heimsmet í 100 metra grindarhlaupi kvenna í kvöld á afmælismóti í frjálsum íþróttum í London, svokölluðu London Anniversary Games.

Keni Harrison kom í mark á 12,20 sekúndum og bætti metið sem sem hin búlgarska Yordanka Donkova var búin að eiga frá árinu 1988. Yordanka Donkova hljóp þá á 12,21 sekúndu.

Keni Harrison átti besta tíma ársins en hún klúðraði algjörlega úrtökumótinu fyrir bandaríska Ólympíuliðið á dögunum. Keni Harrison náði bara sjötta sæti á úrtökumótinu og fær því ekki að keppa á ÓL í Ríó í næsta mánuði.

„Eftir að ég komst ekki í Ólympíuliðið þá vildi ég sýna og sanna hvað ég hefði getað gert á leikunum," sagði Keni Harrison við BBC Sport eftir hlaupið.

„Það er erfiðast að komast í bandaríska liðið. Okkar land gefur aðeins þeim þremur efstu í úrtökumótinu sæti í liðinu og ég náði ekki að vera ein þeirra. Pressan fór með mig á þeim degi og ég vildi óska þess að fá tækifæri til að hlaupa það hlaup aftur," sagði Keni Harrison.

Keni Harrison á sex af sjö fljótustu tímum ársins og tvo af fjórum bestu tímum allra tíma. Það er því ótrúlegt að hún fái ekki að vera með en það er harður heimur þegar þú ert að reyna að komast í bandaríska Ólympíuliðið.

Keni Harrison verður ekki eini háklassa grindarhlauparinn sem missir af leikunum í Ríó því ríkjandi Ólympíumeistari í greininni, Sally Pearson, tognaði aftan í læri í síðasta mánuði og missir af leikunum líka.

Keni Harrison.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×