Innlent

Bændur sem fara illa með dýr missi styrki

Sveinn Arnarsson skrifar
Langstærstur hluti bænda fer vel með dýr sín en taka þarf hart á svörtum sauðum að mati DÍS.
Langstærstur hluti bænda fer vel með dýr sín en taka þarf hart á svörtum sauðum að mati DÍS. vísir/eyþór
Dýraverndunarsamband Íslands vill að Matvælastofnun fái úrræði til að fella niður opinberar greiðslur í landbúnaði vegna brota á lögum og reglugerðum um velferð dýra.

Ákvæði þessa efnis var tekið út úr samningunum árið 2013. Ástæðan var sú að Bændasamtök Íslands og Landssamband kúabænda lögðust gegn ákvæðinu.

Nú er komið annað hljóð í strokkinn og hefur formaður Bændasamtakanna sem og stjórn Landssambands kúabænda verið jákvæð í garð þess að slíkt ákvæði verði sett aftur inn í samningana.

Hallgerður Hauksdóttir
Í harðorðri umsögn Dýraverndunarsambands Íslands um búvörusamninga segir félagið það ótækt með öllu að ríkið styrki fjárhagslega í gegnum búvörusamninga aðila sem uppvísir eru að lögbrotum eins og alvarlegu dýraníði. Skorar það á Alþingi að sjá til þess að heimild til að fella niður opinbera styrki vegna alvarlegs eða ítrekaðs dýraníðs verði felld inn í nýja búvörusamninga og búvörulög.

„Ég fæ ekki betur séð en að hið opinbera veiti ekki nægt fé til eftirlits með dýraníði hér á landi. Íslenskir neytendur vilja ekki að skattfé renni til einstaklinga sem uppvísir eru að hrottalegu dýra­níði og því þarf Matvælastofnun að búa yfir úrræði til að stöðva svoleiðis voðaverk,“ segir Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndunarsambands Íslands, í samtali við Fréttablaðið. 

„Enda hafa engir stigið fram í þeirri umræðu og lýst yfir stuðningi við að einstaklingar sem uppvísir eru að illri meðferð á skepnum njóti styrkja,“ bætir Hallgerður við.

Dæmi eru um hrottalega meðferð bænda á gripum sínum. Í fyrra kom til að mynda upp mál þar sem bóndi á Norðurlandi batt kvígu í sinni eigu aftan í jeppa og dró hana eftir götunni. Var sú meðferð gagnrýnd harðlega en kvígan drapst af því að vera dregin eftir götunni. 

Hallgerður segir það skipta máli að hægt sé að taka á verknaði sem þessum. „Til að mynda fær bóndi sem bindur kú sína aftan í bíl og dregur hana til dauða aðeins þrjú til fjögur hundruð þúsund krónur í stjórnvaldssekt en hann má enn halda skepnur. MAST þarf úrræði til að stöðva svoleiðis menn,“ segir Hallgerður.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×