Bílar

Aukning í sölu bíla í apríl 74,2%

Finnur Thorlacius skrifar
Mikil aukning varð í sölu bíla í nýliðnum aprílmánuði, eða sem nemur 74,2 prósentum. Í mánuðinum seldust 2.273 nýir bílar, en þeir voru 1.305 í sama mánuði í fyrra.

Sala á nýjum fólksbílum frá 1. janúar til 30.apríl í ár hefur aukist um 63,6% miðað við sama tíma á síðastliðnu ári. Nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 5.878 á móti 3.594 miðað við sama tímabil 2015, eða aukning um 2.284 bíla.

Góður gangur er í endurnýjun bílaflotans og er mikilvægt að sú þróun haldi áfram þar sem meðalaldur bíla er enn hár hér á landi. Nýir bílar eyða og menga umtalsvert minna en þeir sem eldri eru en meðaleyðsla og útblástur bíla hefur dregist saman um 40% frá árinu 2005 til dagsins í dag og þeirri þróun er hvergi lokið, segir í fréttatilkynningu frá Bílgreinasambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×