Innlent

Aukin aðsókn á sjálfsvarnarnámskeið eftir hvarf Birnu

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Aukin aðsókn hefur verið á sjálfsvarnarnámskeið undanfarna daga, eða frá því að Birna Brjánsdóttir hvarf í miðborg Reykjavíkur. Formaður ofbeldisvarnarnefndar Reykjavíkurborgar segir að mikilvægt sé að borgarbúar treysti því öryggiskerfi sem sé til staðar, en að stórauka þurfi fræðslu um öryggismál.

Þó að Reykjavík sé ein af öruggustu borgum heims hefur hvarf Birnu Brjánsdóttur skapað töluverða umræðu um hvað mætti betur fara í öryggismálum í miðborginni.

Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, sagði í viðtali á Vísi í gær að á milli 70 og 80 prósent kvenna 18 ára og eldri upplifðu sig óöruggar einar á gangi, og um þriðjungur karla.

Formaður ofbeldisvarnarnefndar Reykjavíkurborgar segir að borgin geti gert heilmikið til að auka öryggi, og nefnir meðal annars aukna götulýsingu, betra samstarf við skemmtistaði og fleiri öryggismyndavélar.

„Aðalmálið til þess að koma í veg fyrir ofbeldi er fræðsla. Þar verðum við að standa okkur ennþá betur en við höfum gert,“ segir Heiða Björg Heimisdóttir, formaður ofbeldisvarnarnefndar Reykjavíkurborgar.

Borgin, skóla og frístundasvið, neyðarmóttaka og lögregla munu funda um aukna fræðslu í öryggismálum eftir helgi.

„Við sjáum að tilkynningum til lögreglu eru ekki að aukast en okkur sýnist að tilkynningum til neyðarmóttöku séu að aukast. Við viljum líka að fólk treysti kerfinu. Það viti að það er hægt að leita eitthvað,“ segir Heiða Björg

Konur á aldrinum 20 til 40 ára sækja í sjálfsvarnarnámskeið

Konur eru líklegri en karlar til að upplifa óöryggi í miðbæ Reykjavíkur að kvöldi eða næturlagu. Undanfarna daga hefur orðið ákveðin vitundarvakning um þetta og aukin áhugi hefur orðið á námskeiðum í sjálfsvörn.

Jón Viðar Arnþórsson hefur haldið fjölmörg sjálfsvarnarnámskeið undanfarin ár en segist aldrei hafa fundið fyrir jafn miklum áhuga og undanfarna daga, bæði frá einstaklingum og hópum.

„Það er búið að hafa mikið samband við okkur, bæði við mig sjálfan og fleiri starfsmenn í Mjölni. Í hvert sinn sem það verður gróft ofbeldisbrot eða slæmt gerist finnum við að fleiri hafa samband við okkur,“ segir Jón Viðar.

Hann segir að konur á aldrinum tuttugu til fjörtíu ára séu mikill meirihluti þeirra sem hafi undanfarna daga sýnt því áhuga að læra sjálfsvörn.

„Aðstæður eru breyttar í Reykjavík og fólk er ekki óhult eitt. Grunnatriði ef að manni vill líða vel og vera öruggur er hvar sem er að maður geti varið sig og sé vanur að takast á.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×