Auðvelduð íbúðakaup geta aukið þenslu Snærós Sindradóttir skrifar 17. ágúst 2016 10:00 Fasteignakaup verða auðveldari fyrir ungt fólk með nýju stuðningskerfi við fyrstu kaupendur. vísir/vilhelm
Reynslan hefur sýnt að húsnæðisverð á Íslandi hækkar þegar lánamöguleikum almennings fjölgar. Þetta segir Ásgeir Jónsson hagfræðingur og bendir á að húsnæðismarkaðurinn og lánamarkaðurinn séu nátengdir. Nýtt frumvarp um stuðning við fyrstu kaup á íbúð var kynnt á mánudag. Það miðar að því að fólk geti nýtt séreignarsparnað sinn til tíu ára við kaup á fyrstu íbúð og að ný verðtryggð lán séu ekki lengri en til 25 ára, með nokkrum undantekningum þó. „Á Íslandi hefur fólk lagt gríðarlega mikla vinnu í að velta fyrir sér hvernig fasteign það á að kaupa en síðan hafa allir tekið sömu lánin. Fyrir hrun tóku næstum allir 40 ára verðtryggð lán án þess nokkurn tímann að pæla í hvað hentar þeim. Ég vonast til þess að þetta verði til þess að það verði mismunandi lánakostir í boði eftir því hvar þú ert staddur á lífsleiðinni,“ segir Ásgeir. Hann tekur sem dæmi að sá sem er 25 ára að kaupa sína fyrstu íbúð eigi ekki að fá sömu tegund af láni og sá sem er 45 ára og standi í íbúðarkaupum.Hætta á þenslu „Um leið og þú byrjar að opna aðgengi fólks að lánsfé þá hækkar fasteignaverðið. Það er bara reynslan. Það gerðist árið 2004 og það gerðist líka áður. Um leið og vextir lækka og lántökuheimildin rýmkar þá kaupir fólk sér stærri íbúðir og getur boðið hærra í. Ef allir eru að fá samtímis meiri lántökumöguleika þá hefur það áhrif.“ Árið 2004 varð bönkunum heimilt að bjóða 100 prósent húsnæðislán, með tilheyrandi þenslu. Í Fréttablaðinu í gær sagði Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að grunnvandi Íslendinga á húsnæðismarkaði væri ekki verðtryggingin sem slík, heldur miklu frekar hátt vaxtastig. Lánakjör til fasteignakaupa eru mun hagstæðari á Norðurlöndunum en á Íslandi en sem dæmi má nefna að í Finnlandi er hægt að fá lán sem bera 1 til 1,4 prósent vexti. Óverðtryggð lán á Íslandi bera um sjö prósent vexti en þau má fá á mun lægri vöxtum á Norðurlöndunum eða allt niður í 3,6 prósent.Ásgeir Jónsson hagfræðingurNorrænt kerfi ekki gengið hér „Með norræna vexti þarftu að taka þetta norræna módel alla leið. Þá þarftu að vera með norræna ákvörðun á launum, sem þýðir að það gætir ákveðinnar hófsemi í því hvernig laun hækka, norræna tegund af mynt sem við erum ekki með og líka norræna hagstjórn. En það hefur bara ekki gengið hjá okkur. Okkur hefur ekki tekist að reka hagkerfið með þeim hætti, því miður,“ segir Ásgeir. Hann segir að það snúist að einhverju leyti um pólitískan vilja þó auðvitað sé það fólkið sem kjósi stjórnmálamennina. „En að einhverju leyti virðist þetta vera ákveðið agavandamál. Hluti af þessu gæti verið að við höfum okkar eigin gjaldmiðil. Það hefur legið fyrir í áratugi að ef við missum hagkerfið úr böndunum, hækkum laun of mikið og það verði of mikil þensla, þá sé það ekkert vandamál ef við bara fellum gengið. Það er þessi frábæri gengissveigjanleiki sem allir eru að tala um en hann skapar ákveðið agaleysi. Það er eins og að eiga foreldra sem er alveg sama hvenær þú kemur heim á kvöldin.“ Ásgeir segir að þó horfi til þess að Íslendingar séu að verða agaðri þegar kemur að því að stýra hagkerfinu. „Í síðustu uppsveiflu, frá 2004 til 2008, óx hagkerfið um átta prósent á ári og tókst að vaxa um 30 prósent á fjórum árum áður en það hrundi. Núna erum við búin að vera með hagvöxt í fimm til sex ár sem er mun hægari og jafnari.?
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Sjá meira