Sport

Auðveldasta ákvörðun ársins á Jamaíka: Völdu Bolt í ÓL-liðið sitt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Usain Bolt.
Usain Bolt. Vísir/Getty
Sexfaldi Ólympíumeistarinn Usain Bolt verður í Ólympíuliði Jamaíka í Ríó en Ólympíuleikarnir fara fram í brasilísku borginni í næsta mánuði.

Flestir myndu nú líta á það sem auðveldustu ákvörðunina sem verður tekin á Jamaíka á þessu ári en meiðsli kappans á úrtökumótinu settu hinsvegar smá óvissu í málið.

Hinn 29 ára gamli Usain Bolt, sem hefur unnið 100 metra hlaupið og 200 metra hlaupið á síðustu tveimur leikum mun hinsvegar fá tækifæri til að verja titlana sína í Ríó.

Usain Bolt verður hluti af 63 manna Ólympíuliði Jamaíku en hann var einn af fjórum liðsmönnum þess sem fengu smá sérmeðferð vegna meiðsla.

Líkt og hjá sterkum frjálsíþróttalandsliðum eins og Bandaríkjunum þá eru margir Jamaíkamenn sem ná lágmörkum inn á leikana. Það fara því fram úrtökumót til að finna þá bestu til að keppa fyrir sína þjóð á leikunum.

Bolt meiddist aftan í læri í fyrstu umferð 100 metra hlaupsins á úrtökumótinu í Kingston en hélt áfram. Hann hætti hinsvegar keppni eftir að hafa unnið undanúrslitariðilinn sinn.

Meiðsli Usain Bolt voru ekki alvarleg en hann vildi greinilega ekki taka neina áhættu enda stutt í Ólympíuleikanna.  Hann er stærsta íþróttahetja þjóðar sinnar og því kannski ekkert skrýtið að hann fái smá sérmeðferð.

Heimsmethafinn í 100 og 200 metra hlaupum stefnir að því að ná magnaðri gullþrennu með því að vinna báðar þessar greinar á þremur leikum í röð. Eitt er víst að heimurinn mun fylgjast spenntur með því hvort það takist hjá honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×