Sport

Átta Íslendingar keppa á Evrópumótinu í MMA

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Evrópumeistaramót áhugamanna í MMA fer fram þessa dagana í Birmingham. Átta Íslendingar keppa á mótinu sem hefst í dag.

Mótið er haldið af International MMA Federation, IMMAF, en samtökin eru í samstarfi við UFC.

Íslendingarnir koma öll úr Mjölni en þetta eru þau Bjarki Þór Pálsson, Bjarki Ómarsson, Hrólfur Ólafsson, Inga Birna Ársælsdóttir, Sunna Rannveig Davíðsdóttir, Egill Øydvin Hjördísarson, Bjartur Guðlaugsson og Pétur Jóhannes Óskarsson.

Keppendurnir hafa lagt gríðarlega á sig í undirbúningi fyrir keppnina en mótið er með útsláttarfyrirkomulagi. Keppendur geta átt von á því að berjast nokkra bardaga á þessum dögum komist þeir áfram.

Jón Viðar Arnþórsson, forseti Mjölnis, er með í för. „Þetta mót er aðeins öðruvísi en flest önnur mót sem við höfum farið á þar sem menn geta fengið allt upp í fjóra jafnvel fimm bardaga á þessum fjórum dögum. Þetta verður gríðarleg reynsla, og góð reynsla, fyrir liðið okkar. Og að sjálfsögðu ætlum við að slátra þessu móti,“ segir Jón Viðar.

Eins og áður segir er IMMAF í samstarfi við UFC og verða bardagarnir sýndir á Fight Pass rás UFC eftir að keppninni lýkur. „Þetta er stórt mót og það er mjög flott umgjörð í kringum þetta. Við hlökkum til að taka þátt í þessu og munum vera dugleg að láta vita af úrslitum um leið og þau gerast á Snapchat undir mjolnirmma og á Facebook.“

Hér að ofan má sjá stutt viðtöl við keppendur þar sem þau tala um mótið, hópinn og reynsluna sem er framundan.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×