Skoðun

ATH. Þétting er víst lausnin

Björn Teitsson skrifar
Þorsteinn Víglundsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði í Bítinu að morgni 16. febrúar að áherslur Reykjavíkurborgar á þéttingu byggðar í borginni á kostnað jaðarsvæða séu ekki til þess fallnar að auðvelda ungu fólki að kaupa sér sína fyrstu íbúð. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu þurfi að axla sameiginlega ábyrgð á því að tryggja að nægt lóðaframboð sé hverju sinni.

Þetta er mikil skammsýni og einfaldlega rangt.

Þróunin, eins og hún er, er jákvæð. Hún gengur hægt en jákvæð engu að síður. Í jafn gisinni borg og Reykjavík er þétting byggðar lífsnauðsynleg. Til að stytta vegalengdir, til að auka lífsgæði, til að létta álagi á umferðaræðar, til að stuðla að sjálfbærum samgöngumátum.

Þegar hugsað er um kostnað þarf nefnilega að taka fleiri atriði með í reikninginn en lóðaverð. Lóðir gætu verið ódýrari í útjaðri borgarinnar en þar tekur við annar kostnaður. Fólk er þar með knúið til að kaupa og reka bíl, sem lækkar ráðstöfunartekjur um 50-100 þúsund krónur á mánuði. Ný hverfi kalla á nýjar götur (dýrt), viðhald gatna (dýrt), nýja skóla (dýrt) og byggir múra milli fólks með þungum umferðaræðum. Svo ekki sé minnst á tímann. Og mengunina og kostnaðinn sem felst í auknu byggingarmagni glænýrra hverfa. Jeminn eini.

Sé ekki nóg að minnast á að tími eru peningar (sem er glatað en ok) þá eru líka töpuð lífsgæði sem felast í tíma sem er eytt, ekki varið, heldur eytt, í umferð á hverjum degi.

Fólk á til að gleyma þegar það skammast út í „lattélepjandi“ miðbæjarfólk, að helstu atvinnuveitendur borgarinnar (og landsins) eru í póstnúmerum 101, 104 og 105. Þar á meðal eru Landspítalinn, Háskóli Íslands, Reykjavíkurborg, Landsbankinn, Eimskip... uppskipunarhafnir og öll útgerðin. Bara til að nefna brotabrot. Þar eru einnig helstu menntastofnanir; Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík þar sem rúmlega 20 þúsund manns stunda framhaldsnám. Það þjónar hagsmunum fólksins, íbúana, borgarinnar, landsins alls og þjóðarinnar allrar, að fólk eigi kost á að búa í námunda við þau svæði þar sem það stundar nám eða starfar.

Þétting er lausnin. Að búa nálægt vinnu/skóla er lausnin. Að stytta vegalengdir er lausnin. Að létta álag á miðbænum með nýjum miðpunktum hverfa þar sem lífvænleg starfsemi í menningu, mat og drykk fær að þrífast, er lausnin. Að auka lífsgæði, draga úr mengun og hættu bílaumferðar, er lausnin. Það liggur í augum uppi.

Það er reynsla allra borga sem teljast eftirsóttar til að búa í beggja vegna Atlantshafsins. Lærum af reynslunni í guðanna bænum og hættum að hneigja okkur eftir þörfum hagsmunaaðila sem er drullusama um lífsgæði ykkar; fólksins sem byggir þessa borg og gestanna sem sækja hana heim.

(Þessi grein er byggð á stöðuuppfærslu af facebook frá október 2016. Það er virkilega sorglegt að geta endurtekið næstum hvert einasta orð, óbreytt).




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×