Innlent

Ásta Stefánsdóttir týndist í Fljótshlíð

Ásta Stefánsdóttir.
Ásta Stefánsdóttir.
Konan sem leitað hefur verið að í Fljótshlíð frá því á þriðjudagskvöld heitir Ásta Stefánsdóttir lögfræðingur, 35 ára, og býr í Reykjavík.  Sambýliskona hennar hét Pino De Los Angeles Becerra Bolanos en hún fannst látin í Bleiksárgljúfri á þriðjudagskvöld.

Eftirfarandi kemur fram um Ástu í tilkynningu lögreglunnar á Hvolsvelli:

Ásta er há og grönn, um 1,80 m á hæð með ljós skollitað hár.

Dregið hefur verið úr formlegri leit en rannsókn málsins og upplýsingaöflun er haldið áfram og biður lögreglan alla þá sem voru á ferð í Fljótshlíð, á svæðinu innan við Múlakot, frá því að kvöldi laugardags og fram á mánudagskvöld, að hafa samband vegna upplýsingaöflunar í málinu.

Sími lögreglunnar er 488 4110 og einnig í netfangið sveinnr@logreglan.is


Tengdar fréttir

Eftir 12 tíma leit fer útlitið að verða svart

Árangurslaus leit að týndu fólki í langan tíma getur reynst björgunarsveitarfólki andlega erfið. Reyndur björgunarsveitarmaður segir leit oftast ljúka á átta tímum.

Fundu fótspor eftir berfætta manneskju

Leit stendur enn yfir að konu sem saknað er eftir sumarbústaðaferð í Fljótshlíð. Fótspor eftir berfætta manneskju fannst í morgun um þremur kílómetrum austan við Bleiksárgljúfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×