Bílar

Askja frumsýnir GLC Coupé og GLS

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz GLC Coupé er glænýr sportjeppi.
Mercedes Benz GLC Coupé er glænýr sportjeppi.
Nýir Mercedes-Benz GLC Coupé og GLS verða frumsýndir í sýningarsal Bílaumboðsins Öskju að Krókhálsi 11, laugardaginn 22. október kl. 12–16. GLC Coupé er nýr og spennandi sportjeppi með fáguðum formlínum. Coupé hönnunin gerir hann sérlega sportlegan í útliti. Hann er fáanlegur strax í Plug-In Hybrid útgáfu, fyrstur allra Coupé sportjeppa í heiminum, en fæst einnig sem bensín– eða dísilbíll. Í dísilútfærslunni er 2 lítra vél með forþjöppu sem skilar 241 hestafli og togið er 273 NM.

GLS er ný og betrumbætt útgáfa af GL jeppanum og er flaggskipið í glæsilegri jeppalínu Mercedes-Benz. GLS er mjög stór og stæðilegur jeppi sem hefur mjög góða torfæruhæfni. GLS kemur í nokkrum útfærslum hvað varðar vélar og afl en þær eiga það sameiginlegt að vera sparneytnar og umhverfismildar þrátt fyrir hörkugott afl.

GLS350d er með 3 lítra V-6 dísilvél með forþjöppu sem skilar 255 hestöflum og togið er 455 NM. GLS450 er búinn V-6 bensínvél með tveimur forþjöppum en hún skilar jeppanum 362 hestöflum og togið er 369 NM. GLS550 er með 4,7 lítra V-8 vél með tveimur forþjöppum og skilar alls 449 hestöflum. Bæði GLC Coupé og GLS eru búnir hinu háþróaða 4MATIC fjórhjóladrifskerfi frá Mercedes-Benz og auk þess báðir búnir 9G-Tronic sjálfskiptingu.

Mercedes Benz GLS.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×