Tónlist

Ásgeir í tónleikaferð með alt-J um Ástralíu

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Ásgeir ætlar að vinna að nýju efni á árinu þegar hann er ekki á tónleikaferð.
Ásgeir ætlar að vinna að nýju efni á árinu þegar hann er ekki á tónleikaferð. vísir/stefán
„Mér líst mjög vel á þetta og er mjög spenntur fyrir þessu,“ segir tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti Einarsson en hann er á leið í tónleikaferð með ensku indí-hljómsveitinni alt-J. Hún vann hin virtu Mercury-verðlaun árið 2012 fyrir sína fyrstu plötu, An Awesome Wave. Um er að ræða tónleikaferð um Ástralíu í maí en fyrstu tónleikarnir fara fram í Brisbane 8. maí og verða helstu borgir heimsálfunnar heimsóttar.

„Þetta eru líklega með stærstu tónleikum sem við höfum tekið, þetta eru allt tíu til fimmtán þúsund manna tónleikastaðir,“ segir Ásgeir spurður út í ferðalagið. Hann er mjög vinsæll í Ástralíu og fór tvisvar sinnum þangað á síðasta ári. „Stærsti aðdáendahópurinn okkar er líklega í Ástralíu. Við höfum fengið góða spilun á stórri útvarpsstöð þar, Triple J, þannig að fólk fór að tengja við okkur.“

Spurður út í kynni sín af hljómsveitinni alt-J segist Ásgeir alltaf hafa verið mikill aðdáandi sveitarinnar. „Ég hef hlustað á alt-J síðan hún var stofnuð og hef alltaf fílað hana. Ég er mikill aðdáandi og hef verið frá þeirra fyrstu plötu. Við hittum meðlimi sveitarinnar fyrir ekki svo löngu í Ástralíu, við tókum nokkur festivöl með þeim. Þeir sögðust fíla tónlistina okkar, sem var mjög ánægjulegt,“ útskýrir Ásgeir.

Síðasta ár var mjög annasamt hjá Ásgeiri í tónleikahaldi og sér hann einnig fram á annasamt ár 2015. „Þetta ár verður samt annasamt að öðru leyti. Við tökum þennan Bandaríkjatúr með Hozier, komum svo heim í tvo mánuði og förum svo með alt-J.“

Ásgeir, var nýkominn úr ræktinni þegar blaðamaður náði tali af honum. Er ekki erfitt að halda sér í formi þegar maður er á stöðugu tónleikahaldi? „Ég byrjaði í átaki á síðasta Ástralíutúr. Ég reyni að hreyfa mig á hverjum degi og hef gaman af því að lyfta. Það erfiðasta við það er að maður þarf að reikna út daginn, hvenær maður hefur tíma. Svo þarf maður að finna sér líkamsræktarstöð á þeim stað þar sem maður er.“ 

Hann segist reyna að lifa heilsusamlegu lífi þó svo að mikið partístand geti einkennt tónleikaferðir. „Á síðasta túr sleppti ég alveg að drekka og það var frábært. Þá er maður meira „on it“, sefur betur og hreyfir sig frekar. Annars er alltaf nóg af áfengi í boði þar sem maður kemur á þessum ferðalögum.“

Ásgeir ætlar að einbeita sér að lagasmíðum þegar hann er ekki á tónleikaferðalagi og sér fyrir sér að hefja upptökur á nýrri plötu í haust en frumraun hans, Dýrð í dauðaþögn, kom út árið 2012. „Ég er byrjaður að semja og er kominn með góða aðstöðu. Ég hef ekki haft tíma til að semja en þetta er að koma inn núna. Ég hef verið að græja aðstöðu undanfarnar vikur og eftir Bandaríkjatúrinn ætla ég að byrja að vinna á fullu,“ segir hann. 

Hann er kominn með lagahugmyndir í kollinn og ætlar sér að gera mikið á næstu mánuðum í lagasmíðum. Hann segir jafnframt að nýja efnið verði að öllum líkindum samið á íslensku og tekið upp þannig . „Nýja platan gæti verið bæði á íslensku og ensku en þetta kemur í ljós.“


Tengdar fréttir

Ásgeir Trausti borðaði ástralskt kebab á gamlárskvöld

Ásgeir Trausti hefur verið á tónleikaferð um Ástralíu síðan í desember. Í kvöld spilar hann tvívegis í Óperuhúsinu í Sydney. Með á sviðinu verða sjö meðlimir úr Sinfóníuhljómsveit Sydney. Á morgun lýkur síðan ferðalaginu með giggi í Melbourne. Þrennir tónleikar eru svo fram undan í Japan og að þeim loknum fer Ásgeir í langa tónleikaferð um Bandaríkin. Fréttastofa fékk sendar nokkrar skemmtilegar myndir frá túrnum um Ástralíu.

Ásgeir Trausti í Billboard

Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti er einn þriggja flytjenda sem fjallað var um á vefsíðu bandaríska tímaritsins Billboard í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×