Tónlist

Ásgeir í fyrsta sæti í Ástralíu

Ásgeir er vel liðinn í Ástralíu.
Ásgeir er vel liðinn í Ástralíu. Mynd/Jónatan Grétarsson
Plata Ásgeirs Trausta, sem ber titilinn In the Silence er í fyrsta sæti á listanum yfir söluhæstu plöturnar á iTunes í Ástralíu. Hann skellir þar með tónlistarmanninum Pharrell Williams í annað sæti listans með plötuna sína, Girl. Ástralska fegurðar- og hæfileikadísin Kylie Minogue er í þriðja sæti listans með plötu sína, Kiss Me Once.

Hér má sjá listann í heild sinni og getum við verið stolt af okkar manni.

Ásgeir er nú á tónleikaferðalagi um Evrópu en kemur heim um miðjan aprílmánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×