Chelsea eyðilagði veisluna í Madríd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alvaro Morata í færi fyrir Chelsea.
Alvaro Morata í færi fyrir Chelsea. vísir/getty
Chelsea vann frábæran útisigur á Atlético Madrid, 2-1, í annarri umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Þetta var fyrsti Evrópuleikurinn á glænýjum og stórglæsilegum heimavelli Atlético Madrid, Estadio Wanda Metropolitano.

Antonine Griezmann skoraði síðasta Evrópumarkið á gamla vellinum, Vicente Calderón, og hann skoraði fyrsta markið á nýja vellinum þegar hann kom Atlético yfir með marki úr vítaspyrnu á 40. mínútu. Staðan 1-0 í hálfleik.

Spænski landsliðsframherjinn Álvaro Morata jafnaði metin með marki á 60. mínútu en Morata er fæddur og uppalinn í Madríd og er, eins og allir vita, uppalinn hjá Real Madrid. Honum hefur því ekki leiðst að eyðileggja opnunarpartíið á nýjum velli Atlético í kvöld.

Veislan var svo endanlega eyðilögð þegar að Michy Batshuayi skoraði flautumark fyrir Chelsea í uppbótartíma og tryggði Chelsea öll stigin þrjú.

Chelsea er efst í C-riðlinum með sex stig en Roma, sem vann Qarabag, 2-1, í kvöld, er með fjögur stig. Atlético er með eitt stig í þriðja sæti riðilsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira