Körfubolti

Gunnar um Bonneau: Of háar launakröfur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefan Bonneau er farinn úr Ljónagryfjunni.
Stefan Bonneau er farinn úr Ljónagryfjunni. Vísir/Stefán
Eins og Vísi greindi frá fyrr í dag er Stefan Bonneau farinn frá Njarðvík og mun ekki spila með liðinu meira í Domino's-deild karla.

Gunnar Örlygsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, segir að helst séu tvær ástæður fyrir brotthvarfi Bonneau.

„Hæð liðsins okkar hefur verið að hjá okkur mikið í vetur. Svo ráðum við ekki við þær launakröfur sem hann setti fram,“ sagði Gunnar.

Njarðvík gerði tveggja mánaða samning við Bonneau í haust en samkvæmt Gunnari fór Bonneau fram á hærri laun nú.

„Þetta var því niðurstaðan eftir ákvörðun stjórnar og þjálfara. Við viljum frekar leita að stærri leikmanni,“ sagði Gunnar en Jeremy Atkinson gekk til liðs við Njarðvík í haust. Gunnar útilokar ekki að fá annan stóran leikmann til félagsins.

Sjá einnig: Bonneau sagt upp hjá Njarðvík: Sjokkerandi niðurstaða

„Opnað verður aftur á félagaskipti í janúar og getur vel verið að við fáum annan stóran mann þá, hvort sem er íslenskan leikmann eða annan Bandaríkjamann til að vera með Jeremy.“

Hann segir viðskilnaðinn við Bonneau ekki hafa verið erfiðan, þrátt fyrir að hann hafi gengið í gegnum margt síðan hann kom til félagsins fyrir tæpum tveimur árum síðan.

Bonneau sleit til að mynda hásin tvívegis á meðan hann var hjá Njarðvík. „Við höfum staðið mjög þétt við hann og borgað fyrir sjúkraþjálfara fyrir hann allan þennan tíma. En þetta er bara körfubolti - leikmenn koma og fara.“

Hann ítrekar að Njarðvíkingar eru vel settir hvað bakverði daga og að enn eigi liðið Snjólf Marel Stefánsson og Odd Kristjánsson inni. Þeir eru meiddir en reiknað er með að þeir spili eftir áramót.

„Við eigum frábæra unga bakverði sem hafa verið að stíga upp og nú fá þeir sviðið. Við erum stolt af því hversu marga góða og unga leikmenn við höfum átt í gegnum tíðina og sú vinna mun halda áfram.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×