Fótbolti

City skoraði þrjú í Kænugarði | Sjáðu mörkin

City-menn fagna í Kænugarði í kvöld.
City-menn fagna í Kænugarði í kvöld. vísir/getty
Manchester City er í sterkri stöðu eftir 3-1 sigur á Dynamo Kiev í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem fór fram í Kænugarði í kvöld.

Manuel Pellegrini ákvað að hvíla lykilmenn sína í bikarleiknum gegn Chelsea um helgina og það borgaði sig því City spilaði frábærlega í fyrri hálfleik og var 2-0 forysta liðsins síst of stór.

Sergio Agüero skoraði fyrsta mark City en David Silva bætti öðru við eftir glæsilega sókn. Agüero fékk tvö góð skotfæri þar að auki í fyrri hálfleik.

Heimamenn komu þó af meiri krafti inn í síðari hálfleikinn og uppskáru mark þegar Vitaliy Buyalskiy skoraði mark með skoti sem breytti um stefnu á varnarmanni City.

Yaya Toure skoraði þó í uppbótartíma leiksins og bætti þar með fyrir mistök skömmu áður er hann skallaði framhjá af stuttu færi.

Sergio Agüero kom City yfir á 15. mínútu: David Siva kom City í 2-0 eftir frábæra sókn á 40. mínútu: Vitaliy Buialsky minnkaði muninn á 58. mínútu: Yaya Toure skoraði þriðja mark City í uppbótartíma:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×