Innlent

Sjaldgæfur flækingur í klóm kattar

Kjalbeinið á dúfunni stendur út í loftið, sem er til merkis um að hún sé ekki vel á sig komin.
Mynd/óskar P. Friðriksson
Kjalbeinið á dúfunni stendur út í loftið, sem er til merkis um að hún sé ekki vel á sig komin. Mynd/óskar P. Friðriksson
„Þetta er sárasjaldgæft kvikindi,“ segir Erpur Snær Hansen fuglafræðingur um tregadúfu sem með naumindum lifði af að lenda í klóm kattar í Vestmannaeyjum í gær.

Tregadúfur, litlir fuglar sem þekkjast á spísslaga stéli og blágrænum hring í kringum augun, eru mjög algengar í Bandaríkjunum. Slík dúfa hefur þó aðeins einu sinni borist til Íslands, árið 1996 til Vestmannaeyja, og ekki nema um fimm dæmi eru um að þær hafi sést í gjörvallri Evrópu, að sögn Erps.

„Hún er ansi rýr greyið, ekki nema 69 grömm þegar þær eiga að vera 120 grömm. Hún hefur verið orðin aðframkomin af hungri eftir flugið yfir Atlantshafið,“ segir hann. Hún hafi meira að segja verið farin að brenna flugvöðvunum.

Erpur segir að dúfan hljóti að hafa lent í miklum fellibyl við austurströnd Bandaríkjanna – jafnvel Ísak sem var í fréttum í vikunni. Hún hafi lítið átt í köttinn, sem hafi skemmt á henni fiðrið áður en henni var bjargað úr klóm hans.

„Hún er þokkalega ern miðað við það sem á undan er gengið en það er samt spurning hvort hún lifir. Það er verið að reyna að gefa henni að éta og ef það tekst þá verður henni sleppt,“ segir Erpur. - sh



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×