Innlent

Hvergerðingar bjarga forsætisráðuneytinu

Bæjarstjórinn í Hveragerði segir forsætisráðherra Kína, lengst til vinstri, hafa fylgst anduktugan með þegar Ólafur Reynisson veitingamaður reiddi fram gufusoðið brauð og lambalæri með engum fyrirvara.
Mynd/GUðmundur Þór Guðjónsson
Bæjarstjórinn í Hveragerði segir forsætisráðherra Kína, lengst til vinstri, hafa fylgst anduktugan með þegar Ólafur Reynisson veitingamaður reiddi fram gufusoðið brauð og lambalæri með engum fyrirvara. Mynd/GUðmundur Þór Guðjónsson
„Við bara rigguðum upp hér dagskrá fyrir einn æðsta mann í heimi,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði sem sjálf var fjarri góðu gamni 21. apríl síðastliðinn þegar óvenjuleg ósk barst frá forsætisráðuneytinu.

„Þegar Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, var hér um daginn ætlaði hann auðvitað að stoppa og skoða Kerið og öll dagskráin miðuð við það. Svo fengu þeir ekki að fara þangað og þá voru góð ráð dýr. Það var hringt hingað og spurt hvort við gætum tekið á móti þeim með hálftíma fyrirvara,“ lýsir Aldís bæjarstjóri aðdragandanum að óvæntri heimsókn Wens Jiabaos.

Þótt Aldís sjálf hafi verið erlendis þegar forsætisráðherra Kína bar að garði kom það ekki að sök, segir hún. Aðrir bæjarfulltrúar ásamt forstöðumanni upplýsingamiðstöðvar Suðurlands og öðrum settu á tuttugu mínútum upp þrælgóða dagskrá fyrir Wen og aðra tigna gesti frá Kína.

„Hverasvæði var opnað og hann fékk leiðsögn um það sem honum þótti afskaplega áhugavert enda jarðfræðingur,“ segir bæjarstjórinn. Í lokin hafi verið farið með Wen og föruneyti á veitingastaðinn Kjöt og kúnst sem er við hliðina á hverasvæðinu og nýtir orkuna þaðan í matseldina. „Þar fékk hann að smakka hveraeldaðan mat.“

Aldís segir sér finnast Hvergerðingar hafa staðið ótrúlega vel að verki. „Það væru örugglega ekki margir sem gætu hlaupið svona til með engum fyrirvara og tekið á móti svo stórri sendinefnd með öllu því sem tilheyrir. Þetta sýnir hvað Íslendingar geta verið fljótir að bregðast við og Hvergerðingar sérstaklega,“ segir hún stolt af sínu fólki.

Nokkrum dögum eftir innlit Wen Jiabaos fengu Hvergerðingar þakkarbréf frá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. „Hún var svo ánægð með að við skyldum geta bjargað málinu með þessum hætti þegar þau voru óvelkomin við Kerið,“ segir Aldís um bréfið frá Jóhönnu.

Alla heimsóknina segir bæjarstjórinn hafa verið mjög skemmtilega. „Bæjarbúar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Allt í einu hrúguðust inn lögregluþjónar á hvert einasta götuhorn og það fóru sprengjuleitarhundar út um allt þar sem Wen átti að koma við. Mér skilst að þetta hafi verið eins og stormsveipur færi yfir bæinn.“

gar@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×