Innlent

Gengur gegn EES-samningi að banna gengistryggð lán

bílahaf ESA viðurkennir að neytendasjónarmið geti verið fyrir banni gengistryggingu lána í íslenskri mynt. Það bann megi þó ekki vera algilt. Fjöldi slíkra lána var veittur vegna bílakaupa.fréttablaðið/valli
bílahaf ESA viðurkennir að neytendasjónarmið geti verið fyrir banni gengistryggingu lána í íslenskri mynt. Það bann megi þó ekki vera algilt. Fjöldi slíkra lána var veittur vegna bílakaupa.fréttablaðið/valli
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur sent íslenskum stjórnvöldum formlegar athugasemdir vegna allsherjarbanns við gengistryggingu lána í íslenskri mynt. Lögum var breytt í þá veru í kjölfar dóms Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána árið 2010. Stofnunin segir þetta ganga gegn EES-samningnum.

Meginathugasemd ESA er að þetta fæli fjármálastofnanir frá því að fjármagna lán sín í öðrum myntum en íslenskri krónu. Allsherjarbann við slíkri tengingu sé ekki réttlætanlegt og hægt sé að ná fram neytendavernd á annan máta. Stofnunin tekur fram að álitið hafi ekki áhrif á endurútreikninga gengistryggðra lána eða gjaldeyrishöft.

Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra efnahagsmála, segir að ESA viðurkenni hugmyndafræðina á bak við lögin. Stofnunin telji hins vegar að altækt bann gangi of langt.

„Nú höfum við tvo mánuði til að bregðast við, rökstyðja lögin og eftir atvikum taka til varna eða boða viðbrögð sem þyrfti að grípa til."

Hann vill ekki fara mikið út í það hvaða breytingar þetta hefði í för með sér, yrði Ísland að fara eftir álitinu. „Það kann að vera að við þyrftum að gera einhverjar breytingar og aðgreina betur einstaklinga og lögaðila, en ég vil ekki fara mikið út í það."

Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, segist mjög ósammála túlkun ESA. Hann segir bannið á engan hátt snúa að fjármagnsflutningum á milli landa. „Þetta fjallar einfaldlega um hvort tengja megi verðgildi íslensku krónunnar við aðra gjaldmiðla." Hann býst því ekki við að þetta hafi mikil áhrif hér á landi.

Bréfið frá ESA er svokölluð formleg athugasemd (e. Letter of Formal Notice). Sé stofnunin ósátt við svarbréf Íslendinga getur hún sent rökstutt álit (e. Reasoned Opinion) sem Íslendingar fá rúm til að svara. Sé það svar ekki tekið til greina gæti málið endað fyrir EFTA-dómstólnum.

kolbeinn@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×