Innlent

Lokkar hrefnuna af leið

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Svo virðist sem hrefnan hafi breytt matarvenjum sínum. Það kemur hrefnuveiðimönnum í bobba, en þeir finna hana ekki lengur á þeim slóðum þar sem hún hefur haldið sig síðustu ár.

Mikið liggur við að finna hrefnuna, að sögn Gunnars Bergmanns Jónssonar, framkvæmdastjóra Hrefnuveiðimanna, því eftirspurnin eftir hrefnukjöti er mikil hér á landi.

„Við höfum séð þegar við opnun hrefnuna að hún er full af makríl,“ útskýrir Gunnar. „Og eins og við vitum þá er makríllinn á mikilli hreyfingu og hrefnan virðist vera að elta hann sem gerir okkur erfiðara fyrir að finna hana.“

Áður var á vísan að róa á Faxaflóa en nú ætla hrefnuveiðimenn að leita hrefnunnar á Breiðafirði.

Magnús Gunnþórsson, skipstjóri á hvalaskoðunarskipinu Eldingu, segist oft hafa ratað á hrefnuna en hún sé á mikilli hreyfingu.

Ólafur Júlíusson, innkaupastjóri Kaupáss, segir hrefnukjötið seljast í tonnavís í verslunum fyrirtækisins. Hann segir það hafa fest sig í sessi sem úrvals grillkjöt. „Það sést best á því að ef við tökum aðeins einstaka vöruliði hjá okkur í grillmat þá er marineraða hrefnukjötið vinsælasti vöruliðurinn,“ segir hann. „Inni í því er ekki salan á hrefnukjöti sem við erum með í kjötborðinu hjá okkur.“

Hrefnukjötið hefur einnig selst vel á veitingastöðum að sögn Gunnars. Elísabet Jean Skúladóttir, rekstrarstjóri Sægreifans, segir að á síðustu þremur árum hafi salan á hrefnukjöti nær þrefaldast. „Það eru mest erlendir ferðamenn sem fá sér hrefnukjöt en þó hef ég tekið eftir því að í sumar fór það líka að færast í aukana hjá Íslendingum,“ segir hún. Hún segir enn fremur að það sé mikið um að fólk komi úr hvalaskoðun og fái sér hrefnukjöt.

- jse



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×