Innlent

Huldumaður keypti höll Jóhannesar á 200 milljónir

Selt!
Hrafnabjörg við Eyjafjörð er eitt glæsilegasta hús landsins. Það fór á sölu í síðustu viku, en Jóhannes Jónsson í Bónus bjó í húsinu þegar það var í eigu eignarhaldsfélagsins Gaums. Húsið seldist á tæpar 200 milljónir samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Selt! Hrafnabjörg við Eyjafjörð er eitt glæsilegasta hús landsins. Það fór á sölu í síðustu viku, en Jóhannes Jónsson í Bónus bjó í húsinu þegar það var í eigu eignarhaldsfélagsins Gaums. Húsið seldist á tæpar 200 milljónir samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
„Það kom kauptilboð sem var samþykkt um daginn," segir Björn Guðmundsson, sölustjóri Fasteignasölunnar Byggðar á Akureyri.

Hrafnabjörg við Eyjafjörð, eitt glæsilegasta hús landsins, hefur verið selt. Húsið var áður í eigu Jóhannesar Jónssonar í Bónus, en Mynni ehf., félag í eigu skilanefndar Landsbankans, setti það á sölu í síðustu viku, eins og Fréttablaðið greindi frá.

Fasteignasalan Byggð á Akureyri seldi húsið, en fasteignasölurnar Stakfell, Eignamiðlun og Fasteignamiðstöðin voru einnig með húsið á skrá. Björn Guðmundsson vill hvorki gefa upp hver átti tilboðið í húsið né hversu hátt það var, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hljóðaði tilboðið upp á tæpar 200 milljónir.

Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans, staðfesti að tilboð í húsið hefði verið samþykkt en gat að öðru leyti ekki tjáð sig um söluna.

Fréttablaðið hafði einnig samband við Jóhannes Jónsson, en hann bjó í húsinu þegar það var í eigu Gaums, eignarhaldsfélags Baugsfeðga. Hann segir að hvorki hann né aðilar honum tengdir hafi fest kaup á húsinu.

Arkitektinn Fanney Hauksdóttir teiknaði húsið. Hún sagði í samtali við Fréttablaðið í síðustu viku húsið vera einstakt að mörgu leyti. „Það var mikið lagt í húsið. Mikill metnaður," sagði hún.

Ekkert var til sparað við byggingu hússins og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var kostnaðurinn hátt í 400 milljónir. Húsið er á tveimur hæðum og á efri hæðinni mynda stofan, borðstofan og eldhúsið eitt stórt og opið rými.

Gólfsíðir útsýnisgluggar eru í stofunni ásamt arni. Á neðri hæðinni má meðal annars finna tæknirými, líkamsræktaraðstöðu og tvö baðherbergi. Fyrir utan er 40 fermetra sundlaug og stór heitur pottur.

atlifannar@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×