Innlent

Lýsi og oreganó gleðigjafar

Karen Kjartansdóttir skrifar
Fiskneysla á meðgöngu getur gert börn greindari. Skort á omega-3 fitusýrum sem fást úr sjávarfangi má svo tengja þunglyndi hjá börnum og fullorðnum. Þetta segir Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir, sem hefur um árabil stundað rannsóknir á fæðuofnæmi og hefur mikinn áhuga á því hvernig fæða hefur áhrif á okkur. Hann segir að við getum beinlínis orðið glaðari við að borða sjávarfang og ef við kryddum matinn okkar með óreganó.

„Menn hafa verið að skoða áhrifin á boðefnin í heilanum og hvernig heilinn virkar og starfar. Það er ýmislegt í fæðunni sem getur haft áhrif á virkni hans. Allar frumuhimnur í líkamanum og heilanum eru gerðar úr fitusýrum sem við fáum úr fæðunni sem við borðum. Þessar fitusýrur hafa svo áhrif á það hvernig okkur líður því yfir frumuhimnurnar fara öll skilaboð. Ef í líkamanum er of mikið af fitusýrum sem virka ekki vel á þig eru skilaboðin ekki hagstæð fyrir heilann. Omega-3 fitusýrur, sem við fáum helst úr sjávarfangi, hafa mjög jákvæð áhrif á líkamann, draga til dæmis úr bólgum. Omega-6 sýrurnar, sem við fáum úr kjötvörum, hafa hins vegar öfug áhrif. Það er því betra fyrir okkur að fá meira af fyrrnefndu fitusýrunum," segir Michael.

Michael segir miður að gríðarlega hafi dregið úr fiskneyslu undanfarin ár og þar með neyslu á omega-3 fitusýrum, þar sem síðarnefndu fitusýrurnar tengist mjög vellíðan og geðprýði.

Í nýjasta hefti Læknablaðsins bendir hann auk þess á að komið hafi í ljós að þá sem svipti sig lífi skorti oft omega-3 fitusýrur. Tengja megi skort á þeim beint við þunglyndi hjá börnum og fullorðnum.

Þá vitnar hann í rannsókn á mæðrum sem tóku lýsi á meðgöngu, sem hann segir hafa sýnt ótvírætt fram á að neysla lýsis hafi jákvæð áhrif á hegðun og þroska barnanna við fjögurra ára áldur. Í þeirri rannsókn hafi um 12 þúsund börnum verið fylgt eftir og hún hafi leitt í ljós að fiskneysla á meðgöngu hafði mælanleg áhrif á greind barnanna.

En það er fleira sem getur gert okkur glöð. Ýmis krydd geta gert okkur gott. Michael nefnir að rannsókn, sem kynnt var í desember og gerð var á dýrum, gefi góðar vísbendingar um að óreganókrydd geti haft nánast sömu áhrif á heilann og geðdeyfðarlyf hafa.

„Það er því ekki bara maturinn heldur líka krydd lífsins sem skipta okkur máli," segir Michael.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×