Innlent

Byltingarkennt taumerkingarkerfi - hannað af tölvunarfræðingi Grundar

Erla Hlynsdóttir skrifar
Kjartan Örn Júlíusson að prufukeyra kerfið. Þegar það var í þróun varmerktur fatnaður fimm til tíu heimilismanna og kerfið betrumbætt eftir því sem þótti þurfa
Kjartan Örn Júlíusson að prufukeyra kerfið. Þegar það var í þróun varmerktur fatnaður fimm til tíu heimilismanna og kerfið betrumbætt eftir því sem þótti þurfa
Hjúkrunarheimilið Mörk í Reykjavík hefur tekið í notkun byltingarkennt taumerkingarkerfi. Í hverja flík heimilisfólksins er saumuð lítil örflaga sem tengd er upplýsingum um eiganda flíkurinnar, á hvaða deild hann er og á hvaða herbergi. Auk þess eru upplýsingar á örflögunni um á hvaða þvottakerfi skuli þvo flíkina. Þessi tækni minnkar líkur á að flíkur týnist á hjúkrunarheimilinu eða fari á rangan stað. Einnig er tryggt að flíkin er alltaf þvegin á réttum hita.

Kjartan Örn Júlíusson, tölvunarfræðingur á Grund, hannaði taumerkingakerfið en það hefur verið notað í tæp fjögur ár á hjúkrunarheimilunum Grund og Ási í Hveragerði. „Eftir því sem við best vitum er hvergi annars staðar í heiminum verið að nota svona flögur í merkingar á einkafatnaði íbúa hjúkrunarheimila," segir Kjartan.

Örflögurnar eru á stærð við skyrtuhnapp
Fótsnyrtingin skráð í tölvukerfið

Taumerkingarkerfið er tengt tölvukerfinu Ellistoð sem Kjartan Örn hannaði einnig sérstaklega með þarfir hjúkrunarheimila í huga. Þar er haldið saman upplýsingum um heimilismenn, aðstandendur og daggjaldagreiðslur, svo dæmi séu tekin. Þar er einnig að finna skráningu á ýmiss konar viðbótarþjónustu, til dæmis þegar heimilismenn fara í hárgreiðslu eða fótsnyrtingu.

Taumerkingarkerfið var tekið í notkun árið 2007 þegar nýtt Þvottahús Grundar og Áss tók til starfa í Hveragerði.

Frá vígslu þvottahússins í Hveragerði. Aðstaðan hefur verið talsvert endurbætt síðan
Hætt við að nota strikamerki

Kjartan segir að upphaflega hafi staðið til að nota strikamerki til að merkja flíkurnar en fljótlega heyrði hann af þessum örflögum sem eru hannaðar fyrir þvott. Þær koma frá fyrirtæki sem nefnist DataMars, og lesararnir sömuleiðis. Eftir að hjúkrunarheimilin höfðu kynnt sér þessa tækni var ákveðið að nota hana frekar og Kjartan hannaði kerfi til að nota flögurnar á hjúkrunarheimilunum.

Hann tekur fram að engar upplýsingar séu geymdar á flögunum sjálfum, nema tíu stafa tala. Í tölvukerfi hjúkrunarheimilanna eru síðan upplýsingar um hver á hvaða flík.

Þegar komið er með óhreinan einkafatnað í þvottahúsið er hver flík tekin upp úr pokanum og skönnuð, ekki þarf að leita að örflögunni, heldur sér skynjari um að finna hana og lesa af henni númerið. Kerfið flettir síðan upp númeri flíkurinnar og athugar á hvaða þvottakerfi á að þvo hana. Þá birtast á skjá skannans upplýsingar um á hvaða kerfi eigi að þvo flíkina ásamt því að rödd les upp þessar upplýsingar.

Kjartan Örn Júlíusson, tölvunarfræðingur á Grund og hönnuður kerfisins
Sparar tíma og vinnu

Á árum áður fór flokkun fatnaðar heimilismanna þannig fram að starfsmenn þvottahússins þurftu að leita að þvottanúmeri á hverri flík og flokka hann eftir deildum. Þegar þvotturinn kom á deildina þurfti starfsfólk þar síðan að flokka hann eftir eigendum. Þetta kostaði mikinn tíma og vinnu.

„Í byrjun árs 2005 fórum við í ferð til Danmerkur til að skoða búnað í þvottahúsið og þar skoðuðum við tvö þvottahús sem voru að nota eins flögur, en þar sem þeirra rekstur snerist um leigu á þvotti, rúmfötum og þess háttar þá hentaði ekki fyrir okkur að nota forritið sem þeir voru með," segir Kjartan sem þá lagðist í hönnun kerfisins.

Tilbúinn fatapakki á leið upp á deild. Svona koma þeir úr þvottahúsinu
Tilbúnir fatapakkar

Með örflögukerfinu er flíkin skönnuð eftir þvott og sett í hólf sem er „merkt" eigandanum, þegar allar flíkur sem viðkomandi heimilismaður á eftir í þvotti eru komnar segir kerfið starfsmanninum að pakka öllu sem er í því hólfi. Þeim flíkum er síðan pakkað inn í plast og pakkinn merktur eigandanum.

Öll flokkunarvinnan fer því fram í þvottahúsinu og á heimilin berast bara pakkar merktir hverjum og einum og þar þarf bara að opna pakkann og ganga frá fatnaðnum í fataskáp viðkomandi heimilismanns.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×