Lífið

Boðið í vinsælan sjónvarpsþátt

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir.
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir.

Eftir fréttir hérlendis í síðustu viku um nýja íslenska ilminn EFJ Eyjafjallajökull by Gyðja hafa fréttir af ilmvatninu farið sem eldur í sinu í fjölmiðlum víða um heim og virðist áhuginn erlendis vera mikill enda er um að ræða vatn úr í Eyjafjallajökli sem er blandað við hágæða ilmvatn ásamt hraunmola úr gosinu sem er vafinn utan um ilmvatnsglasið.

„Við hjá Gyðju erum vægast sagt hissa á allri þessari athygli núna strax í byrjun því við erum ekkert farin að markaðssetja ilminn á erlendri grundu," svaraði Sigrún Lilja Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Gyðju spurð út í athyglina sem ætlar engan endi að taka.

Hinir ýmsu erlendu fréttamiðlar sem dæmi AFP höfðu samband við forsvarsmenn Gyðju til að óska eftir viðtali og ítarlegri upplýsingum um ilminn og tengsl hans við eldgosið.

Í kjölfarið fór svo greinar um ilminn að birtast í erlendum miðlum. Einnig hafa viðtöl við Sigrúnu Lilju birst í prentmiðlum erlendis um ilmvatnið þar sem farið er nánar út í hvað Gyðja stendur fyrir, framtíðaráform, fylgihluti Gyðju úr íslenska roðinu, ilminn og konseptið við Eyjafjallajökul, eldgosið og áhrif þess í dag á Íslendinga.

Sigrúnu Lilju var boðið í vinsælan árlegan sjónvarpsþátt í desember næstkomandi hjá stæstu sjónvarpsstöð Þýskalands, Sat 1, þar sem farið verður yfir hápunkta ársins 2010 í heimsfréttum. Eyjafjallajökull er sjálfsögðu þar á meðal og vilja forsvarsmenn þáttarins bjóða Sigrúnu að koma í þáttinn og fjalla um um ilmvatnið.

„Verkefnið hefur farið vel af stað á erlendri grundu þrátt fyrir að ekki hafi ennþá verið hafist handa á markaðsetningunni. Ilmvatnið er nú strax að fá meiri athygli heldur en hægt var að þora að vona sem lofar góðu fyrir framhaldið," sagði Sigrún Lilja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×