Innlent

Vilja grafa hella og ísgöng í Langjökul

Íshellir Hugmyndir eru uppi um að útbúa ísgöng og hella í Langjökli, þar sem þessi mynd er tekin. Fréttablaðið/Vilhelm
Íshellir Hugmyndir eru uppi um að útbúa ísgöng og hella í Langjökli, þar sem þessi mynd er tekin. Fréttablaðið/Vilhelm

Ísgöng og hellar í Langjökli gætu orðið nýjasta aðdráttaraflið fyrir ferðamenn á Vesturlandi ef hugmyndir aðila í ferðaþjónustunni verða að veruleika.

Verkfræðistofan Efla ásamt Icelandair Group og öðrum standa að undirbúningi verkefnisins, en vildu ekki tjá sig við Fréttablaðið enn sem komið er, þar sem málið er enn á hugmyndastigi.

Kynningarskjal varðandi verkefnið var sent bæjaryfirvöldum í Borgarbyggð í síðustu viku, en enn hefur ekki verið tekin afstaða til hugmyndanna. Búist er við að nánari kynning fari fram á næsta fundi umhverfis- og skipulagsnefndar sveitarfélagsins.

Samkvæmt kynningarskjalinu er nú unnið að því að kanna möguleika á byggingu ganga í jöklinum og stefna aðstandendur að því, að fengnum rannsóknarleyfum, að grafa rannsóknargöng um 150 til 200 metra inn í ísinn. Þar verður fylgst með ýmsum þáttum svo sem vatni, sigi í ísnum, sprungum og fleiri atriðum, til að skera úr um framtíðarmöguleika ganganna.

Næstu skref í verkefninu eru að stofna undirbúningsfélag til að halda utan um verkefnið. Icelandair Group hefur þegar ákveðið að leggja verkefninu til fjármagn, ef af verður, sem og Efla, en auk þess standa yfir viðræður við öflugt verktakafyrirtæki um að koma að verkinu. Einnig hefur Borgarbyggð verið boðið að koma að félaginu að einhverju leyti, til dæmis með aðstoð við undirbúning eða jafnvel fjárframlagi. Fyrst og fremst sé þó mikilvægt að fá sveitarfélagið að verkefninu til að „mynda sem öflugastan hóp um verkefnið“, eins og segir í fyrrnefndu skjali.

Þar segir einnig að verði verkefnið að veruleika, fái ferðafólk tækifæri til að upplifa Langjökul á nýjan hátt og fræðast auk þess um jökla og áhrif hnattrænnar hlýnunar. Verði verkefnið að veruleika, bjóði göngin einnig upp á margs konar rannsóknir og hafa Háskóli Íslands og Veðurstofa Íslands sýnt áhuga á að koma að verkefninu með einum eða öðrum hætti.

Enn er óvíst hvort verkefnið verði að veruleika, en í kynningarskjalinu segir að það falli vel að þeim áherslum sem hafa verið innan ferðaþjónustunnar, það er að auka ferðalög til Íslands um vetrartímann. thorgils@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×