Innlent

Icesave-viðræður í gang í september

Icesave-samningur var samþykktur 30. desember 2009 í annað skipti á Alþingi. Ekki hefur verið fundað í málinu frá því 4. mars.
Icesave-samningur var samþykktur 30. desember 2009 í annað skipti á Alþingi. Ekki hefur verið fundað í málinu frá því 4. mars.
Reiknað er með að funda um Icesave í september, að loknum sumarleyfum í Bretlandi. Síðasti formlegi samningafundur var haldinn 5. mars, rétt fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga þar sem samningum frá því haustið 2009 var hafnað.

Samninganefndirnar hafa átt í óformlegu sambandi af og til síðan þá og embættismenn hittust í byrjun júlí, á tveggja daga fundi í Reykjavík. Þar var rætt um að koma málum af stað í haust. Lee Buchheit, formaður ísensku samninganefndarinnar, sat þann fund.

„Menn hafa verið að skiptast á skeytum og stefnt er að því að koma málum í traustari og skipulagðari farveg eftir sumarfrí,“ segir Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins. Hann væntir þess að fundað verði í september.

Enn er deilt um ábyrgðina á Icesave-reikningunum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins svaraði norsku fréttastofunni ABC því til á dögunum að Íslendingum bæri að greiða Icesave að fullu. Fyrir því væru tvær áðstæður.

Í fyrsta lagi hefði innstæðutryggingartilskipun Evrópusambandsins ekki verið innleidd hér með réttum hætti á sínum tíma. Í öðru lagi vísaði framkvæmdastjórnin í jafnræðisregluna og að hún hefði verið brotin.

Er þar horft til neyðarlaganna svokölluðu, en með þeim tryggðu íslensk stjórnvöld innlendar innstæður í bönkum hérlendis að fullu.

Framkvæmdastjórnin vísar til þess og að það sama þurfi að gilda um allar innstæður, ætli menn að halda jafnræðisregluna í heiðri.

Fréttablaðið sendi fjármálaráðuneytinu fyrirspurn um kostnað vegna Icesave-viðræðnanna. Þar var bæði spurt um launakostnað nefndarmanna sem og þann kostnað sem hlotist hefði af ráðleggingum erlendra sérfræðinga.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, upplýsti Fréttablaðið að tölur yfir þann kostnað lægju ekki fyrir og ekki stæði til að taka þær saman fyrr en að viðræðum loknum. Líkt og áður segir er allsendis óvíst hvenær það verður.

kolbeinn@frettabladid.is


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×