Innlent

Fréttaskýring: Leiðtogar samþykkja að hefja viðræður

Höfuðstöðvar Leiðtogaráð Evrópusambandsins mun fjalla um aðildarumsókn Íslands á fundi ráðsins í svokallaðri Justus Lipsius-byggingu, sem er hluti af höfuðstöðvum ESB í Brussel.Mynd/ESB
Höfuðstöðvar Leiðtogaráð Evrópusambandsins mun fjalla um aðildarumsókn Íslands á fundi ráðsins í svokallaðri Justus Lipsius-byggingu, sem er hluti af höfuðstöðvum ESB í Brussel.Mynd/ESB

Hvaða áhrif hefur Icesave-málið á fyrirhugaðar aðildarviðræður íslenskra stjórnvalda við Evrópusambandið?

Allar líkur eru á því að leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins muni samþykkja að hefja aðildarviðræður við íslensk stjórnvöld á fundi leiðtogaráðs ESB í Brussel á morgun. Ákvörðun um viðræður liggur fyrir í drögum að lokaályktun fundarins, sem Fréttablaðið hefur undir höndum.

Í drögunum segir meðal annars: „Eftir að hafa skoðað umsókn Íslands á grundvelli [álits framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins] og niðurstaðna frá desember 2006 um frekari stækkun sambandsins, kemst leiðtogaráðið að þeirri niðurstöðu að Ísland uppfylli pólitísk skilyrði sem sett voru af leiðtogaráðinu í Kaupmannahöfn árið 1993 og ákveður að hefja aðildarviðræður.“

Í drögunum er ekki minnst á Icesave-málið beinum orðum, heldur notað almennt orðalag þar sem augljóslega er þó vísað til Icesave. Þar segir meðal annars að aðildarviðræðunum sé ætlað að tryggja að Ísland taki upp reglur sambandsins og tryggi að þær taki gildi, og „taki á útistandandi skuldbindingum, til dæmis þeim sem ESA, Eftir­litsstofnun EFTA, hefur bent á“.

Þar mun átt við álit ESA frá því í lok maí, þar sem fram kemur að Íslandi beri að endurgreiða Hollendingum og Bretum lágmarkstryggingu til innstæðueigenda vegna Icesave-reikninganna.

„Leiðtogaráðið fagnar því að Ísland hafi lýst yfir vilja til að leysa úr þessum málum, og hefur trú á því að Ísland muni sýna frumkvæði í því að leysa úr útistandandi málum,“ segir í drögunum.

„Leiðtogaráðið staðfestir að viðræðurnar fari fram á forsendum Íslands og hraðinn muni velta á því hversu hratt Ísland getur uppfyllt þær kröfur sem útlistaðar eru í ramma viðræðnanna,“ segir þar enn fremur.

Heimildir Fréttablaðsins herma að það sé einkum að kröfu fjármálaráðuneyta Bretlands og Hollands sem þessir fyrirvarar verði gerðir um Icesave-málið í lokaályktun fundar leiðtogaráðsins á morgun. Forsætisráðherrar og utanríkisráðherrar landanna tveggja eru sagðir jákvæðari í garð umsóknar Íslands.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kemur það ekki í veg fyrir að aðildarviðræður geti hafist að enn hafi ekki verið samið um Icesave-málið. Náist ekki samkomulag um Icesave-skuldbindingarnar á næstu mánuðum, gæti það hins vegar hindrað að viðræður um þann kafla samningsins sem fjallar um fjármálakerfið geti hafist. Alls eru 35 kaflar í löggjöf Evrópu­sambandsins sem fjalla þarf um áður en tekin verður afstaða til aðildar Íslands, og hægt verður að fara yfir hina kaflana 34 þrátt fyrir að ósamið sé um Icesave.

Sendiherrar 26 aðildarríkja Evrópusambandsins hér á landi, allra nema Möltu, munu samkvæmt heimildum Fréttablaðsins funda hér á landi í dag til að undirbúa fyrirhugaðar aðildarviðræður.

brjann@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×