Innlent

Tónlistarveita útilokar ekki landflótta

Haukur Davíð, sem stendur á hægri hönd starfsmanns Gogoyoko, segir ekki útilokað að fyrirtækið flytji starfsemina úr landi eigi það að geta fjármagnað sig. 
Fréttablaðið/Pjetur
Haukur Davíð, sem stendur á hægri hönd starfsmanns Gogoyoko, segir ekki útilokað að fyrirtækið flytji starfsemina úr landi eigi það að geta fjármagnað sig. Fréttablaðið/Pjetur

„Við eigum í viðræðum við fjárfesta og erum langt komin. En þetta tekur tíma,“ segir Haukur Davíð Magnússon, framkvæmdastjóri og einn stofnenda tónlistarveitunnar og netsamfélagsins Gogoyoko. „Það er ekkert þolinmótt fjármagn á Íslandi þótt margir gefi sig út fyrir að eiga það og ákvarðanafælni ríkjandi,“ bætir hann við.

Gogoyoko gekk snemma á síðasta ári frá samningum við Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins og Vilhjálm Þorsteinsson, stjórnarformann CCP, um fjármögnun upp á hundrað milljónir króna. Til stóð að ljúka fjármögnun upp á rúmar tvö hundruð milljónir króna í maí og tryggja óbreyttan rekstur næstu tvö árin. Haukur er þrátt fyrir þetta bjartsýnn.

Nokkrir þeirra sem rætt er við eru erlendir fjárfestar. Þeir munu lítið spenntir fyrir því að setja áhættufjármagn í verkefni hér, ekki síst þar sem ekki er lengur hægt að kaupa varnir gegn gengissveiflum.

Haukur og segir ekki útilokað að fyrirtækið flytji starfsemina úr landi af þessum sökum. Þá bjóða mörg önnur lönd betri stuðning við sprotafyrirtæki en býðst hér. „Við höfum skoðað þetta og útilokum ekkert,“ segir hann. Tuttugu manns vinnur hjá Gogoyoko. - jab


Tengdar fréttir

Gogoyoko þarf hundrað milljónir

Tónlistarveitan og netsamfélagið Gogoyoko.com er í miðju hlutafjárútboði um þessar mundir og bindur vonir við að afla yfir eitt hundrað milljóna króna áður en þessi mánuður er á enda.

Framtíðin er Gogoyoko

Sprotafyrirtækið Gogoyoko er dæmi um blómstrandi íslenskt hugvit en fyrirtækið er vettvangur fyrir tónlistarfólk til að selja tónlist sína og koma sér á framfæri á netinu. Um helgina opnar fyrirtækið nýja og glæsilega tónlistarbúð þar sem tónlistarmenn fá allar tekjur sjálfir af verkum sínum. Anna Margrét Björnsson fékk sér kaffibolla með þeim Pétri Einarssyni og Kristjáni Gunnarssyni og fékk að heyra meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×